fimmtudagur, júlí 13, 2006

JEEEEEEEEEEEEEEESS JESS JESS JESS JESS JESSEN!

Ég Lilý Erla Adamsdóttir, lils, lilý sem lengi er að öllu, lil the chill pill, já kallaðu mig bara lillý mér er alveg sama.. er að fara til Svíþjóðar að læra heyrnarfræði. Vei! Ég fékk inn í Örebro sem er gott, gut :) Lundur var þó númer eitt og ég held því enn opnu.. sit á biðlista fyrir þann skóla, en á undan mér eru 40 í biðröð svo ég reikna síður með því að komast þar að og hrópa bara húrra fyrir Örebro! HÚRRA!