Jæja.. skólinn byrjaður og allt farið á fullt. Ég fór í fyrstu tímana í gær og jesús minn almáttugur, maría móðir hans og jósep félagi þeirra, hvað ég var uppgefin þegar ég kom heim. Overload. Erfitt að sitja og skilja ekki allar mikilvægu upplýsingarnar sem verið er að segja manni. Það læddist að mér lítill kvíðahrollur. Svona fullorðins eitthvað. Oj. Í dag líður mér betur. Ég er komin með allar bækurnar fyrir kúrsinn. Keypti tvær, fékk eina lánaða og ljósritaði hitt eins og villtur hestur í hænsnakofa. Gott mál, nú get ég hafið lesturinn. Fór líka í heyrnarmælingu í dag. Komst að því að ég heyri vel. Hvor bra!
Hinsvegar fór ég og skoðaði íbúð seinnipartinn í gær og ó mæ godness hvað mig langar í hana. Hún hefur allt. Hún er í stóru 100 ára gömlu bleiku tréhúsi. Í garðinum eru epla og plómutré. Ég sá strax fyrir mér svuntuna sem ég ætla að sauma mér fyrir eplakökubaksturinn á sunnudögum. Íbúðin er á annarri hæð og hún samanstendur af sjónvarpsholi, svefnherbergi, eldhúsi, baðherbergi, búri, og litlu herbergi sem ég myndi nota fyrir föt. Þar er hátt til lofts og fínir gluggar, ljós og björt.. allt sem ég vil. Ah. Gott gestapláss, þvottaðastaða, ískápur, bakaraofn, sjónvarp, video, internettenging og allt innifalið í afar góðum prís. Fyrir utan staðsetninguna sem er verulega góð. Og ég fæ ekki að vita fyrr en á morgun hvort ég fæ hana eða ekki. Hinsvegar er ég búin að innrétta hana í huganum. Svekkelsi.se ef ég ekki fæ hana.
Nýja uppáhaldssíðan mín á netinu er klárlega www.blocket.se seeenilldar síða já! Þar er hægt að kaupa allt. Til dæmis saumavél, rúm, eldhúsbekk, matvinnsluvél spurning samt um að fara varlega í kaup á slíkum hlutum sem eru notaðir, ísvél, og svona södes hjólhýsi. Maður má þó allavega láta sig dreyma þegar maður er á námslánum. Vei húrra fyrir því!
Eitt sem ég tek eftir að ég segji mikið hérna í Svíþjóð þegar ég er að gabba Svíana og þykjast tala sænsku (er í rauninni að 2006 útgáfu Lilýar af dönsku), ég er endalaust jarmandi þegar ég ætla að segja en. Eða s.s. men.. málið er að síðan í france þá hefur ennið ekki komið til baka þannig að ég hljóma eins og hrútur með horn. Kemur.


<< Home