miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Hejdo!

Þá er ég komin til Svíþjóðar. Sátt og sæl ennþá. Ferðalagið gekk ljómandi rjómandi vel. Ég breyddi úr mér í þremur sætum og svaf alla leiðina. Mmm mmm elska þannig flugferðir. Þegar ég lenti spurði ég strax um lestina og rakst stuttu eftir það á Jóhannes, Nesa.. sem ég kannast við síðan á Pengs. Það var bara svo mikið fát á mér að vera komin loksins að ég æddi framhjá honum án þess að spjalla. Sé eftir því núna, því ég veit ekkert hvað hann er að gera. Kjána Lilý ekki komin inní "égeríslenskíútlöndumogtalaalltafviðallaíslendingasemégsé" fílinginn. Allavega, ég æddi þarna að lyftunni og í henni kynntist ég sænskri Stinu.. stelpu sem var að vinna í Mývatnssveit í sumar og býr í norður Svíþjóð. Heimurinn er lítill það skal ég segja! Því hún var að fara í sömu lest og ég og þekkir fullt af fólki sem ég þekki líka. Þ.á.m. Ólöfu Þuríði og Eygló Einars! Hahh! Ferðalagið styttist um fjóra tíma á einu augabragði því við kjöftuðum alla leiðina, godness hvað ég var ánægð með þessar móttökur hér í Svíalandi :) Gott gott.. gott að finnast velkomin frá fyrsta bliki.

Nú er ég hjá Brynju og mér líður vel. Svo er full skemmtidagskrá í skólanum næstu daga og það byrjar strax á morgun, þannig að ég hef örugglega þörf fyrir að tjá mínum heimamönnum allt þetta nýja og spennandi sem ég er að gera á næstunni.. hver veit nema bloggið verði blómlegt!

Ást til allra..
Lilý

P.S. Fyndið hvernig maður bloggar eins og maður sé að skrifa bréf þegar maður gerist svo merkilegur að færa sig um land. Ósjálfrátt.. í alvöru.