mánudagur, ágúst 21, 2006

Ú beibí, Svíþjóð ekki á morgun heldur hinn. Suður á morgun hins vegar og dótið mitt er svo mikið að það er meira en spikið! Hvernig Lilý, hvernig í ósköpunum? Ótrúlegt að þurfa að glíma við sama vandamálið aftur og aftur, æ ofan í æ á hverjum og einum stað sem maður kemur sér fyrir á. Skil þetta ekki!

Helgin var stórkostleg. Ég fór með ömmu og afa og mömmu á föstudags eftirmiðdegi lengst inní afdalasveit. Þar vorum við og fleiri til yfir helgina. Æddum um og uppí fjöll, tíndum ber, hreinsuðum ber og borðuðum ber, við hlógum, skríktum, átum, sungum, föndruðum, prjónuðum, lásum, vorum á berum tásum. En það besta var að vera þarna alle sammen í sólinni. Fyndið hvað maður lærir að meta fjölskyldunna sína öðruvísi með árunum. Ég er ótrúlega heppin með að hafa allt þetta sómafólk í kringum mig. Litlu frænkum mínum náði ég aðeins að kynnast betur þegar við trítluðum í berjamó syngjandi og trallandi. Meiri krútt væri erfitt að finna! Ég hélt á tímabili að mín minnsta frænka myndi hreinlega springa úr krúttleika og breytast í kærleiksbjörn þegar hún stóð útí móa, lítil með ljósa hárið sitt og talaði við stráin og blómin. "Halló þú þarna sem stendur svona einn í vindinum, ég var ekki búin að knúsa þig.." ooog svo fylgdi þetta heljarinnar knús í kjölfarið. Ég hinsvegar blótaði því að vera ekki með myndavélina á þessu augnabliki þegar hún stóð með stráið fast við jörðina í fanginu og þessa endalausu ást í augunum. Litla skottið.

Nú tekur alvaran við. Ég þarf að gera svo óendanlega margt áður en ég fer að ég fell í yfirlið við tilhugsunina, sem er ekki gott því þá kem ég engu í verk! Ó, ó!