Jæja.. ég tók myndarskapinn á þetta í dag. Steig fram úr rúminu teigði mig og geispaði á móti sólinni sem skein gegnum blúndurnar svo skært svo skært. Fékk skemmtilegt símtal.. sauð mér graut og setti hnetur útá í tilefni af sunnudeginum. Sturtaði mig og klæddi í gulan kjól með hvítum blómum. Með sumar í hjarta og sunnudagskapið í hávegum bauð ég Brynju, Valla og börnum í eplaköku. Tíndi epli úr garðinum og tók myndir af draumahúsinu. Hlustaði á Amelie og hlakkaði til morgundagsins.. það geri ég enn :) Ég ákvað að deila hamingjunni með ykkur og setja inn myndir frá því í dag. Ég ætlaði að láta fylgja frá því í gærkvöldi líka en blogger fór í fílu við mig og ég nenni ekki að dekstra hann. Tékka hvort ég geti ekki sett myndir á myndasíðuna mína í staðinn.. og þá heila hrúgu :)

Götuskiltið mitt

Ég með bleikt í bakgrunn

Bleika barbiehúsið

Hversu dásamleg er náttúran?

..oh og sólin!
Lífið er marssósa.


<< Home