fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Já, nei.. ekki eru hún svona í Menntaskólanum á Akureyri blessuð busavígslan. Ég verð nú að segja að ég er ánægð með það, þar sem ég kúgaðist við það eitt að horfa á þetta myndband. Fyndið að hugsa til þess hvað maður var kreisí æstur í þetta busadæmi þegar maður sjálfur var í hlutverki böðulsins. Bandbrjáluð yfir því að ekkert mætti. Núna finnst mér þetta algjör óþarfi og bláttáfram hin mesta vitleysa. Það er hægt að gera svo margt annað skemmtilegt. Hey hó pastellitir, gleðidans og allir eru vinir! Hugur manns breytist greinilega (eins og kroppurinn) með árunum.. maður linast.

Annars er það af mér að frétta að fyrsta vikan í skólanum er alveg að verða búin. Sólin skín í Svíþjóð og við nollerne (busarnir) erum búin að þeytast um bæinn með allskyns fíflagang.. sem endar oftast með grilli og gleði. Íbúðina fæ ég á sunnudaginn og flyt líklegast inn í hana þá. Laugardagurinn fer í að sjoppa það sem ég þarf til að geta "átt heimili", hlakka til! Hlakka líka til að geta dansað á brókinni með músík í bakgrunn. Hlakka til að græja íslenskan fána til að hengja út á einhvern góðan stað.. vei! Hlakka til að borða epli úr garðinum. Hlakka mest til að skilja sænsku geggjað vel og geta átt óheftar samræður við hvern sem er. Hlakka mega sega til að geta lesið skólabækurnar án þess að hiksta eins og hinrik himinhái! Ooog svo hlakka ég til like crazy að fá útrás við eldavélina! Já.. það er margt að hlakka til. Það er gott að hlakka til.. þá hlakkar í manni. Að hlakka er næstum eins og að bíða eftir pakka.

Ást til Íslands og DK og Þýskalands og Hollands og útum víðaveröld..
Lilý lin(su)baun