miðvikudagur, september 06, 2006

Því minni lán, því betra! Klárlega setning haustsins. Góð setning.. pumpar samviskuna og prumpar á peningapúkann. Takk pabbi :*

Íbúðin er moah! æði.. ég er búin að fara í ikea á shopping spree og kaupa það sem mig vantaði í eldhúsið til að geta verið sú myndarlega húsmóðir (sagði einbúinn) sem þetta hús kallar á. Keypti líka gardínur í svefnherbergið, þær gerðu það að verkum að mér hætti að líða eins og ég væri á hawai sýrutrippi, sem hlýtur að teljast gott. Í kvöld færði ég svo til húsgögn og gerði svolítið homie cozy tozy.. gott fyrir sálartetrið. Kerti og blúndur. Nú gæti verið að lesendur mínir góðir haldi að íbúðin sé spikk og span með glansandi gólfum og gullnu lofti en svo er ei.. ó nei! Hún er gömul með skúmaskotum og skrítnum bitum hér og þar sem passa ekki inní, svo er eldhúsgólfið fúið. En það er ekkert verra.. mér allavega líkar það vel. Vel já.. vel vel.

Hér í húsinu erum við þrjár konur, ég, leigusalinn sem er milli 30 og 40 og svo 16 ára stelpa sem leigir herbergi hérna hliðiná mér. Hana hitti ég fyrst í gær og spjallaði við hana um þvottavélina og annað nauðsynlegt. Deildi með henni reynslusögu af fyrstu kynnum mínum við það kvikindi. H**vítið á henni tæmdi sig ekki og ég tók ekki eftir því og skildi ekki af hverju ég mátti ekki opna hana þannig að ég slökkti og beið þar til ég gat opnað og hhhhhallelúja! Syndaflóð 2006! Ég var sem betur fer fljót að loka og neyða hana til að vinda og gera einhverjar gloríur. Greinilega ekki sú húsmóðir sem ég þykist vera! Við erum þó orðnar vinkonur núna ég og kvikindið.

En pían já.. 16 ára hún var fín krúttí og alles gutes. Ég spjallaði heilmikið við hana og sagði henni að banka hjá mér ef hún væri að drukkna úr einsemd eða bara ef hana langaði að baktala þvottavélina. Hún bankaði í kvöld og vil ég trúa því að hún hafi meira verið heilluð af einstakri frásögn minni af þvottavélinni heldur en einmanna. Pottþétt. En allavega, þetter góð saga.. ehh.. og við spjölluðum sem fyrr (ah þessi saga!).. fórum að tala um tónlist og annað slíkt. Ég leyfði henni að hlusta á Fræ, sem er eini diskurinn sem komst með mér af einhverjum ástæðum, veit ekki hvernig hann lenti í töskunni en hann er búinn að bjarga geðheilsu minni þar sem ég gleymdi ipodnum heima (bölvað). Hún var að fíla.. eða svo sagði hún. Eftir áheyrninga skottaðist hún yfir til sín og náði í disk til að leyfa mér að heyra. Ég beið í ofvæni full eftirvæntingar og með tilhlökkun í táberginu. Þennan disk sagði hún einkenna sinn tónlistarsmekk, gott mál. Hann bar sömu tóna í eyru mín og ég hafði heyrt á stúdenta klúbbnum hérna í skólanum um helgina. Heeeress sænsk diskó dans popp smá techno tónlist. Ég að sjálfsögðu brosti og sagði aha mhm.. já mycket intressting og eitthvað svona sem varð svo til þess að hún bauðst til að lána mér hann. Húrra! Ég sá fyrir mér að ég gæti komið mér hér í sænskt partý stuð um helgina.. sjáum til.. ég allavega afþakkaði ekki. Þegar ég tók svo diskinn úr tölvunni sá ég að hún hafði letrað á hann og þar með skírt hann "OMG Party". Ég hló. Nú græt ég því ég byrjaði á þessari sögu, ekki nóg með það heldur kláraði ég hana líka. Slapyou youcrazyfrog! Sorry mistah Zorro..

Gleði gleði framundan.. engir fyrirlestrar bara hópavinna í skólanum fram að helgi, og hún er nánast búin. Svo er festival í bænum frá fimmtudegi og fram á helgi :) Partý people! OMG!