sunnudagur, september 17, 2006

Smá helgarsöknuður í gangi, trilljón tonn af ást yfir til Eyjafjarðar!





Annars bauð Brynja í mazarínumuffins í gær, perlu og hjartaskreytt í pastellituðum glassúr. Hún gaf mér líka te sem ég drakk úr bleikum postulínsbolla. Sæta Brynja. Verst er að ég varð að afþakka sirkusferð sem stóð til boða í dag. Lestur er aðalorsökin. Annars hefði verið gaman að fara og fá sér kandífloss, sjá fílana frussa og trúðana tryllast. Ég hefði jafnvel rænt apanum og tekið hann með mér heim. Fílinn hefði ég látið eiga sig því það hefði líklega endað í þætti hjá Jerry Springer. Ahh en í staðinn ætla ég að drekka te og lesa um sögu heyrnarfræðinnar. Jafnvel fá mér bita af brauðinu sem ég bakaði í gær (misslilauglysandieiginágætihaha!). Hlakka til að fá 22 kíló pakka í næstu viku, veiveivei! Kaffikönnu, straujárn, Oxford English dictionary föt og skó svo eitthvað sé nefnt. Takk mamma :* Hlakka líka til að dansa salsa.. gott að byrja vikuna á því :) Fyrir utan að fyrirlestur morgundagsins er áhugaverður. Sál- uppeldis- og félagsfræði heyrnarskerðingar. Gutes ja. Schööön.

Að lokum langar mig að benda fólki á að hlusta á þetta glens, lét mig grenja úr hlátri í heimþránni í morgun. Takk Birkir :)