Kósý kósý kósýness..
Ég er búin að vera að passa núna fyrir Wallece and Bromit í tvo daga. Yndislegt. Fékk þessa kósý au pair tilfinningu í gær þegar við vorum búin að spá og spegúlera í því yfir grjónagrautnum hvernig hlutirnir voru í gamla daga. Af svipnum á börnunum að dæma þótti þeim ekki lækkert hvernig konurnar þvoðu hárið á sér í þá dagana.

Dagrún var einmitt á leiðinni í bað eftir matinn og hugsaði með hryllingi til kúahlandsins, í alveg hátt í hálfa mínútu! Eftir baðið var svo fíflast agnarögn og hárið fléttað. Það var að sjálfsögðu gert til að fá prinsessu hár daginn eftir. Krúttlegust var hún í morgun í forstofunni þegar tók í peysu sem hékk það og spurði: ,,Á mamma ekki þessa peysu?" jú sagði ég.. þá kyssti hún hana í kaf!
Helgin er komin með annan fótinn inn um dyrnar og kitlar mig í magann. Ég fékk stórkostlegt boð, besta boð sem íslendingur getur óskað sér í útlöndum. Linda hringdi í mig á miðvikudaginn og bauð mér að koma í heimsókn yfir helgina. Svo leiðin liggur til Skaufaborgar í kvöld. Þar eru fleiri Íslendingar sem ætla að gera sér glaðan dag allihopa. Þetta verður ótrúlegt er mér sagt þar sem við erum að fara í VIP partí þarna hjá einhverjum félögum, ótrúlegt. Verst að myndavélin er batteríslaus og ég finn ekki með nokkru móti hleðslutækið. En það er þá í fyrsta skipti. Ísland best í heim! Held að þetta verði klárlega að vera slagorð helgarinnar. Maður er svo slæmur að maður leitar uppi Íslendinga í nærliggjandi borgum. Spurning um að splæsa í eins og eitt svona..

Ást
http://lily.islendingur.is


<< Home