fimmtudagur, október 05, 2006

Þras og bras.. tuð og suð.. velkomin ertu, það veit guð!


Fyrsta vikan af kreisí ass anatomyu kúrsinum er búin. Vúhú! Gleðigleði stigasleði. Núna horfi ég á fjóra "skólalausa" daga framundan. Ekki amalegt. Maður fær þá líklega tíma fyrir lestur, ullarþæfingar, magaæfingar, bakstur og rakstur, lite föndur og kannski lítinn túr til lilleå. Hausinn á mér er á fleygiferð núna.. ekki það að ég sé að slamma við slayer.. ég er búin að vera á ótrúlegu hugarflugi, líður eins og ég sé ólivía í ólivía og ólíver.. ólíver þú veist hvernig hann er! Eða hausinn á mér þar að segja. Ég elska second hand í Svíþjóð, það er til svo margt ömmulegt og sætt, gamalt og fallegt fyrir svo lítinn pening. Hvernig má það vera að maður geti keypt sófa fyrri 3000 krónur íslenskar? Reyndar þarf ég líklega ekki að kaupa mér sófa því ég held ég fái sófa sem stendur hérna niðri í kjallara. Í honum er pláss fyrir tvo til að sofa í! Vei! Sem er stórgott.. ef það er komfí.. því ég á von á gestum hér fram að jólum. Birkir ætlar að koma um næstu helgi. Mútter hringdi í mig í gær og tilkynnti komu sína og moster Sigrúnar í byrjun nóvember. Linda skaufi hlýtur að finna helgi sem hentar, þegar hún er ekki í prófi á laugardegi! Jeminn.. Svíar. Svo eru allir aðrir sem vettlingi geta valdið velkomnir í heimsókn, ég skal laga make uppið, greiða hárið og setja í það rauðan borða.. vera fresh breathing með colgate smile-ið á grímunni og búa um beddan með blúndum og pífum. Vollabolla velkomin!

Hérna.. ég fór í klippingu í gær og ákvað að tileinka ipoddinum nýja útlitið mitt því hann er minn besti vinur og traustasti. How do you like? (oh ég er svo fyndin!)