föstudagur, september 29, 2006

Jesús minn almáttugur og allir hans góðu vinir! Þvílík vinna sem það er að skoða blogg hjá öllum sem eru einhverstaðar annarstaðar en ég og mig fýsir að vita hvað á daga þeirra drífur. Herregud!

Með annað útí

Í dag var tvärgruppsredovisning. Slaufan á verkefnið sem við erum búin að vera að vinna með alla vikuna. Á mánudaginn var fyrirlestur allan daginn um lífssýn fólks útfrá ólíkum sjónarhornum, áhugavert nokk. Við tókum fyrir allt mögulegt, t.d. Feminisma, Búddisma, Islam, Votta Jehova, Gyðingatrú, Húmanisma, Sálgreiningar Freuds, Marxisma, Nasisma og fleira.. Á þriðjudag, miðvikudag, og fimmtudag (sem eru btw(svöl) úrkynjuð heiti á vikudögunum) var hópavinna skráð á skemað. Þar sem við áttum að stúdera Lífssýn út frá ólíkum sjónarhornum. Mitt sjónarhorn var Húmanismi. Gutes.. en almáttugur minn svo ég ákalli hann nú í annað skiptið.. já nei, þriðja.. það er ekki þörf á þremur dögum til þess. Fyrir litla kynningu á þessu í grúppu. Svo kveið ég aldeilis alltof mikið fyrir þessar slaufu. Sem er ágætt svona eftirá.

Í dag fékk ég líka heiðurinn af því að kynna chai unaðinn fyrir yndinu.

Ég ætla ekki að skrifa einu sinni enn í dag í upphafi eftir greinaskil. En í kvöld fór ég í pítsu til Wallace and Bromit.. mmmh ógó mógó góð. Þar sem það eru nokkrir kílómetrar á milli okkar þá ók ég strætó þangað hit (ég er sko farin að hugsa á sænsku og meika ekki íslenskuna ehh.. hallærissvipur og hársviptingar) Ok.. góð saga í uppsiglingu. Ég sat s.s. þarna í strætó og var eitthvað annars hugar eins og alltaf í strætó.. sem sleppur alltaf því stætóinn endar í háskólanum. En þarna þurfti ég að fara út aðeins fyrr og gleymdi mér.. fattaði svo að ég þyrfti að drífa mig að ýta á takkann og gerði það með ótrúlegu viðbragði! Sá ekki að stelpan sem sat þrem sætum fyrir framan mig (við vorum þrjár í strætó) var einmitt að teygja sig í takkann og byrjaði á því á undan mér (það fattaði ég eftir á), ég hinsvegar náði því á undan henni eins og lítill grís! Hún sneri við á miðri leið og leit við til að tékka á þessu litla barni sem frekjaðist til að fá að ýta á takkann! Svo hló hún.

Best hefði náttúrulega verið ef ég hefði svo setið í strætónum og hún farið út, og ég jafnvel vinkað brosandi til hennar þegar hún hefði gengið frá vagninum (í þeirri meiningu að labba í burtu). En ég hoppaði með henni út og við hlógum saman, meira samt þannig að hún hló að mér og ég reyndi að redda vandræðalegheitunum.

Yndislegt kvöld átti ég svo á Erik Rosenbergsväg eins og ávallt þegar ég kem þangað. Þó ég hafi í þetta skiptið verið afar viðskiptalega sinnaður gestur og húkkað mig við skype í dágóða stund. En svo þurfti ég að fara þaðan..

Þá lagði ég leið mína útí strætóskýlið. Það var myrkur og ég sá að það var einhver sem sat einn í skýlinu með hettu á hausnum. Ég meig pínu í buxurnar. Ég hætti mér þó nær og sá að þetta var stelpan frá því í strætónum fyrr um kvöldið. Hún hló þegar hún sá mig. Ég hló ekki. Settist og átti þarna þrjár hrollvandræðalegar mínútur.