miðvikudagur, október 18, 2006

Bögglar


Ef einhver er yndisleg þá er það hún amma mín. Ég fór á pósthúsið áðan til að senda þrollanum lyklana sína (sagði manneskjan sem veit aldrei um sína eigin). Í leiðinni náði ég í sendinguna sem kom alltof seint en kom þó og hvílík gleði.. heima kom í ljós að móðir mín góð hafði sent peysuna sem ég var að prjóna í sumar óumbeðin þessi elska, svo var ég með einhvern miða sem ég vissi ekki alveg fyrir hverju stóð. Einhver annar pakki. Ég vissi að það væri ömmubréf á leiðinni, en þegar ég sá svo pakkann sem ég vissi ekki frá hverjum var brosti ég út að eyrum og þekkti strax skriftina framan á grænagúbbanum. Þessi pakki var frá ömmu, af stærðinni að dæma var í honum eitthvað sem myndi ylja mér í kulda og snjó, þegar ég fékk svo tækifæri til að nota snertiskynið líka þá var ekki um að villast. Uppúr honum komu fallegustu vettlingar sem ég hef augum litið.. í öllum regnboganslitum. Ég sneri mér að konunni við hliðina á mér á augabragði og var komin með orðin á varirnar, þegar ég fattaði að nehh kannski væri ekki svo ákaflega sniðugt að deila gleðinni með henni. Hefði náttúrulega átt að gera það. En í staðinn valhoppaði ég heim með bögglana undir hendinni.

Þegar maður fær svona böggla og bréf þá verður maður gjarnan svolítið hrærður. Hugsa sér að fólki þyki svona vænt um man útum allt. Lítill söknuður læðist upp að manni af því að maður er svo langt í burtu. Stundum á hann það jafnvel til að kitla tárakirtlana og kalla fram lítinn læk niðrá höku. En það er allt í bestabesta lagi því það er svo gott að elska fólkið sitt. Maður þurrkar kinnina, kveikir á kertum, fær sér te og hlakkar til jólanna. Nær jafnvægi á nýjan leik með því að þakka fyrir vinina sem maður á í langtíburtistan.

Við Hanna (nigger og næpa) á góðri stundu með klassík í bakgrunn.