Jæja..
Föstudagur.
Sittningen. Á íslensku, sittningin. Busaveisla þar sem er setið, borðað, drukkið, hlegið, daðrað, klappað, hrópað, sungið og trallað. Svo að lokum dansað. Við Hanna mættum á Kåren eftir að hafa málað mikið, mest eftir númerum þetta kvöldið. Lítið um listsköpun, rauði varaliturinn kom þó sterkur inn og rýmaði vel við polka doppurnar á c-plans kjólnum. Bölvaða c-plan. Kannski vegna þess að ég hef aldrei drukkið C! Fyrir þennan sama föstudag hafði ég staðið í þeirri meiningu að ég fengi sendingu á fimmtudeginum, það hefði gerst ef pósturinn á Akureyri segði sannleikann i stället för att ljúga uppí opið geðið á móður minni! Já ég hljóma bitur og ég veit það. Málið var að þessi pakki hafði að geyma hvorki meira né minna en tvo kjóla sem ég ætlaði að velja milli til að fara í á sittninguna. Þegar ég hafði svo ekki fengið neina tilkynningu frá póstinum í hádeginu á föstudeginum þá ákvað mín(svöl) að strunsa útí búð. (Í Svíþjóð er ekki pósthús, heldur póstafgreiðsla í öllum ICA búðum.) Til þess að athuga hvort þeir hefðu fengið eitthvað á mínu nafni. Svo var ekki, við allavega hittum hvergi pakkan á ferð okkar um hillurnar, þó við værum þrjár að leita.. ég s.s. gerði mál úr þessu og fór sjálf í eigin persónu á bakvið til að grúska eftir honum. Allt kom fyrir ekki, þá ákvað ég að hringja í móðurstöðvarnar og fá númerið á skollans sendingunni, abb síminn ekki í töskunni. Ég hugsaði.. ohh heimska heimska Lilý, tekst aldrei að hafa síman á sínum stað. Jæja.. ég kjögraði heim á leið og ætlaði að hringja þaðan. Kom heim. Fann símann hvergi. Eeeehh, kúkú! Hvaða ha?! Leitaði eins og það væri enginn morgundagur.. en hvað? Neneih.. Svo ég fór á msn og bað tvo trausta vini að hringja í þann bölvaða. Báðir hringdu, ég sat sem stytta á stól og hlustaði eftir hringingunni.. neneih.. ekkert heyrðist. OK. Símanum hefur verið stolið! Já ég sannfærðist á einni sekúndu. Óð niður til Carolinu og tjáði henni ósköpin, ég hafði ekki kjól.. símanum mínum var stolið í búðinni.. og ég var að verða of sein á sittningen! Dámaði mér ekki. Ég fékk að hringja í mömmu hjá Carolinu, mamma hringdi í tryggingarnar til að tékka hvort ég fengi nýjan síma, við fundum númerið hjá símafyrirtækinu til að hringja og láta loka kortinu og ég fékk gemmsan lánaðan hjá Carolinu til þess að labba með hann útí búð og hringja símann minn á leiðinni ef ske kynni að ég hafi misst hann án þess að taka eftir því. Allright.. allt á fullu, ég komin með hjól lánað.. hljóp upp í íbúð til að ná í peysu.. ákvað að hringja einu sinni enn til að tékka í lokaskiptið áður en ég leggði af stað í leit mína af þjófnum. Viti menn, prumpaði ekki síminn inná baði eins og óður væri. Góður með sig uppá hillu í góðu yfirlæti. Þetta var svona love hate moment. Sjæse svo týpískt. Í höfðinu á mér bergmálaði ,,föstudagurinn 13!"Nú var ég orðin alltof sein til Hönnu þar sem við ætluðum að græja okkur sama. Ég gaf skít í póstinn og greip polka dots á leiðinni út, rauða varalitinn og lite grejer. Jæja já.. ég hreinlega varð að koma þessu frá mér, hefur legið á mér síðan. Allavega. Hjá Hönnu stóðum við á sloppnum við sitthvorn spegilinn, hlustuðum á sinfóníutónleika, drukkum martini blanco og geifluðum munninn.. við vorum að fara á ball. Ekki hafði föstudagurinn 13. sagt sitt síðasta eftir "þjófnaðinn" ó nei Gonzalez.. við rétt náðum strætó sem við vissum ekkert hvert var að fara.. vonuðum að hann færi í áttina að háskólanum.. sem hann og gerði. Bílstjórinn sagði okkur að fara út á einhverjum stað sem við höfðum aldrei komið á áður og vissum ekki hvað væri norður og hvað suður í myrkrinu þannig að við brokkuðum þarna í hringi um þetta hverfi á pinnahælunum. Spurðum loksins til vegar þegar blöðrurnar voru farnar að dansa tangó á tánum á okkur, komumst á sporið.. ákváðum að stytta okkur leið yfir tún. Á því miðju var skurður.. hehey jehey! Berleggjaðar í kjólum og á pinnahælum.. skurður þýðir drulla og minnstu munaði að við rynnum varlega á rassinn! Loks komumst við á leiðarenda, þá hálftíma of seinar og ég get svarið það lang síðastar. Ég hét Barbie þetta kvöld og eyddi því með Ken. Hanna fékk að vera ekki ómerkilegri manneskja en Svía drollan og átti arm konungsins um kvöldið. Stórskemmtileg skemmtun þetta kvöld, góður endir á ömurlegum degi! Hanna er svo fyrsta manneskjan sem ég gisti hjá og á tannbursta á lager. Klárlega eitthvað Bente syndrom þar á ferð.. rakst á tólf bursta tilboð og ákvað að skella sér á það!
Laugardagur.
Birkir mætti með danska hreiminn. Yndislegt að hafa hann í kotinu. Við marseruðum þessa 2 kílómetra frá lestarstöðinni heim til mín, með töskurnar á bakinu og fórum létt með það, enda nutum við hjálpar hjólsins góða. Eftir að hafa verið heima í góða stund og gert ekki neitt skunduðum við í prinsessupartý til Dagrúnar. Þar var að sjálfsögðu drekkhlaðið borð. Allar mögulegar sortir af kökum brúnkaka með bananakremi.. mmh.. bratz prinsessa, bryllupskage, heimagerður hummus og fleira sem gerði það að verkum að maður fór feitar þrjár ferðir. Jeremías. Prinsessan prúða virtist sæl með sitt, sat og perlaði í bleika blúndukjólnum sínum og var óskaplega sæt. Um kvöldið komu Hanna og Daníel í mat og við elduðum saman kjúlla og kússkúss með grænmeti í ofni og heimabakað brauð til. Notalegheit á notalegheit ofan. Lungt kväll og jätte trevligt. Bara danska með öðruvísi hreim. Ehejáeinmittehatsjú!
Sunnudagur
Tókum túristann á þetta. Guided tour um slottið og hvaðeina. Fengum hann á sænsku og ensku sem var fine. Fórum niðrí dýflissuna sem nú er notuð fyrir barnaafmæli, uppí skólastofuna, í gegnum kaffihúsið og niðrí kjallara.. með stuttri viðkomu uppi í einum af turnunum fjórum og þar fengum við lite útsýni yfir miðbæinn. Kastalinn kom mér eiginlega á óvart. Hann er svo ótrúlega voldugur að utan, með sýki í kring og virðist vera eitthvað heví duty dæmi. Svo er maður tekinn í túr um hann og það sem maður fær að sjá eru nýlega innréttaðar skólastofur. Ahh say what. Þegar túlkurinn var svo spurður hvað hefði orðið um öll gömlu húsgögnin þá svaraði hún.. öööö, ég veit það ekki. Ehh. Nett vonbrigði. En í þessari kastalaferð eignaðist ég þó kveikjara sem slær öll met. Hestur sem spúir eldi, hann prýðir nú eldhúsgluggann minn. Jæja.. við fórum frá slottinu og í Svampinn. Þess má geta að við vorum ekki fótgangandi, heldur keyrðum við um á eðalvagni af gerðinni Cresent. Í honum ískrar lítið eitt, en séu á honum tveir farþegar ískrar meira en lítið eitt. Jafnvel svo mikið að ólöglegt væri að keyra á honum eftir klukkan tíu í gegnum íbúðarhverfi. Aftan á honum sat ég með kortið á lofti og leiðbeindi ökumanninum hvert skyldi aka. Mjög flókið mál og illa leysanlegt án korts. ,,Já bara beint afram hérna.. já nei við höldum bara áfram hérna eftir þessari götu.. oooog áfram!" Í Svampinum var þetta dýrindis útsýni og veðrið var alveg til að toppa það. Þar uppi fundum við Íslenska fánann og hvaðeina. Fengum okkur kaffi og tíndum lykli. Sem gerðist kaldhæðnislegt nokk af því að hann var tekinn upp úr vasa til að sýna hvernig hann liti út, sem áhersluatriði á söguna um það þegar Bjössi tíndi aukalyklinum. Þótt ótrúlegt megi virðast hittum við heim aftur, bökuðum gourmande pítsu með humlum og Jamie Oliver sósu mmmh svo góð. Hlógum að kínverjum og horfðum á fóstbræður.

Mánudagur og þriðjudagur.
Á mánudaginn var mál málanna það að ég var nánast kýld niður útá götu og það af gamalli konu! Gömul krúttleg kona í rauðri kápu með hvíta spanjólu.. haha! Haaa?! Ég er gömul og á heiminn, vertu ekki fyrir mér var attitudið sem hún gekk með um götur bæjarins. Ekki nóg með það heldur gekk hún Birki nánast niður líka þegar hún þrumaði mjöðminni í töskuna hans! Já svei, og ég sem ber svo ómælda virðingu fyrir gömlu fólki. Átti ekki til orð. Nú, um kvöldið var Birki svo plantað sem áhorfanda á salsadansinn sem vanalega fer fram á þessum dögum. Guði sé lof fyrir það að drengurinn kann sig, annars hefði ekki verið hægt að dansa fyrir hlátur rokunum er ég hrædd um. Í það minnsta ekki þegar gamli og grísinn sneru beint að áhorfendastúkunni.

Í dag hins vegar fór ég á sjúkrahúsið og átti þar fältstudiedag. Virkilega áhugaverður dagur og mér fannst ég læra mikið. Fékk bleikt mót af hægra heyranu í mér. Vúhú. Var með í 3 heyrnarmælingum, 3 viðtölum, fékk að sjá hvað gerist í jourmottagningen og á ototekniska laben. Gott að komast í snertingu við raunveruleikann og þessi dagur hefði ekki geta hisst á betri dag held ég. Ég virkilega hafði þörf fyrir þetta. Gott mál. Í kvöld er ég þreytt og þarf að fara sofa. Þessi færsla slær öll met hvað lengd og upptalningu varðar. Ef einhver hefur komist í gegnum þetta vil ég óska þeim til hamingju með það innilega og heimta hér með að bjóða hinum sama í te einhvern daginn..
Eitt að lokum ..nei þetta er bara rangt!

<< Home