Innilokunarkennd vegna áreiti brókar.
Ahh próflestur. Intensívur próflestur. Smá pása. Nú er ég búin að liggja og lesa í 3 tíma, meðal annars las ég um nema sem eru í kroppnum (receptorer) sem verða fyrir áreiti (stimuli) og breyta þvi í rafboð (elektrisk impulse) sem þeir senda áfram upp eftir taugakerfinu á engum tíma og gefa þannig skilaboð um tiltekið áreiti. Nú sumir þessara nema eru þannig gerðir af guði (eða einhverjum öðrum) að þeir þreytast fljótlega og þessvegna hætta þeir að kippa sér upp við áreitið. Aðrir þreytast ekki svo auðveldlega og þessvegna eru þeir duglegir guttar og segja okkur tildæmis ef eitthvað er að. En svo las ég að gaurarnir sem þreytast auðveldlega geri það til dæmis að verkum að maður finni ekki fyrir fötunum sínum, þó þau séu í rauninni alltaf að áreita húðina. Ahh.. í klukkutíma á eftir var ég meðvituð um fötin mín. Óþægilegt, já. Endaði þannig að ég fór í sturtu.
Mamma er að koma á föstudaginn. Hvílík verðlaun eftir að hafa þreytt fyrsta prófið. Það er ekki laust við að ég hlakki til að kramma hana vel og innilega. Ég veit ekki hvort það sé þessvegna eða af því að það er orðið svo kalt og dimmt úti að ég er komin með jólin í magann. Í næstu viku ætla ég að gera jólakort, vei!
Já, svo er ég að fara að flytja. Sem er stórfínt. Miklu minni leigukostnaður, 5 kílómetrum styttra í skólann og yndislegur sambýlingur. Við Karin, bekkjarsystir mín og góð vinkona (sem minnir mig óneitanlega á Evu frænku) vorum í sömu hugleiðingunum. Kúguðumst þegar við skoðuðum Korridor og ákváðum að slá saman í íbúð. Þetta verður vonandi og án efa farsæl sambúð. Tveir hljóðnemar með sköpunaráráttu. Gott, gott.

Plássið í íbúðinni er afskaplega fínt, tvö svefnherbergi, góð stofa og eldhús. Svo gestir eru ennþá alltaf velkomnir í kotið. Á baðherberginu býr baðkar. Unaður. Þannig að það stefnir allt í það að ég yfirgefi Rynninge og bleika tréhúsið. Fallega hverfið og eplatrén. En hó hó hver er í námi og á lánum. Spurning um að forgangsraða rétt hérna.
Jæja.. lestrarpásan er búin!


<< Home