mánudagur, nóvember 20, 2006

Mánudagur

Hann skreið innum gluggann og kitlaði mig í nefið. Ég bylti mér ekki, heldur spratt upp. Þvoði mér í framan og sauð graut. Leit útum gluggann og gaf þokunni langt nef. Velkominn vertu mánudagur, gaman að fá þig. Þetta sagði ég um leið og ég þvingaði Emilíönu til að syngja fyrir mig gegnum ipodinn. Nú sit ég hér og hugsa um annasama viku sem ég á fyrir höndum. Almennur lærdómur, verkefni og flutningar. Svo styttist í jólin, þeirri bið fylgir föndur.

Helgin var frábær. Það er alltaf svo gaman og gott að fá gesti. Þema helgarinnar var: Ísland best í heimi! Á föstudaginn eftir að Linda kom spjölluðum við frameftir kvöldi, það held ég að við höfum talað um heima og geima. Slúðrað um Íslendinga, sameiginlega vini og kunningja. Við vorum latar á laugardagsmorgun. Kúrðum lengi. Notuðum svo daginn í bæjarrölt með viðkomu á Bara Vara, rétt aðeins til að bleyta uppí tungunni með chai. Það var gott sem aldrei fyrr. Því næst þrælaði ég henni í Wadköping þar sem Cajsa Warg, ráðskona með meiru var heimsótt. Linda tók all hressilega í nefið hjá henni. Piparstaukurinn var víst ekki eins stífir og hinir gúbbarnir sem við vorum að lykta að. Åkeblom hraut þegar við bönkuðum uppá og skipti sér lítið af gestum sínum. Aðra sögu má segja um stelpuna í gourmet búðinni, hún skar ost ofan í okkur eins og henni væri borgað fyrir það. Við kúguðumst hvað eftir annað og hún tróð okkur út af kexi til að lækna ógeðistilfinninguna. Henni tókst þó ekki að selja okkur ost, þótt undarlegt megi virðast. Um kvöldið fór ég í bol með Jökulsárlóni yfir brjóstunum, við gerðum við skyr úr sænsku kesella, sykri og vanilludropum. Næstum því eins og heima. Bökuðum bollur með og borðuðum reyktan lax frá pabba ofan á þær. Húsið fylltist af yndislegum bolluilmi mmmm.. fátt heimilislegra. Síðar kom Hanna, hún var kát. Við héldum niðrí bæ og dönsuðum fram á rauða. Vorum svívirðilega heppnar með heimferð og náðum síðasta stætó. Fegnir fætur skriðu uppí rúm og undir sæng eftir langan dag á labbinu og illa meðferð hárra hæla um kvöldið. Sunnudagurinn var svo tekinn með bollu í bítíð, hressandi labbitúr og Linda fór heim um hálf fjögur. Góð helgi. Takk fyrir komuna :)