fimmtudagur, desember 07, 2006

Helt Galen.

Próf á morgun. Vúbbí! Ég er rugluð í hausnum af hugtökum og þvaðri. Það er ólæranlegt hérna heima því iðnaðarmennirnir herjuðu á húsið í gær og láta öllum illum látum bróðurpart dagsins. Fyfan er orð sem hefur hrunið af vörum mínum og sambýlingsins. Þegar húsið skelfur og titrar og tapparnir duga ekki til ad aftra hljóðbylgjunum inngöngu er hárið reitt svo höfuðleðrið verður þreytt. Good grief! Svo bókasafnið er kærkomið á þessum síðustu og verstu tímum. Sem er svosum ágætt, lætur mann fara úr náttfötunum og hafa sig til. Mikil hætta á ýldu annars í svona törnum.

Nuddgallinn selst eins og enginn sé morgundagurinn, svo ef þú minn kæri/kæra ætlar að tryggja þér eintak þá er betra að hafa hraðann á!

Svo var ég að spá í að herma eftir Elfu sem er svo sniðug og skemmtileg. Hún tekur mynd af sér eða sínu á hverjum degi í eitt ár. Mig langar að gera það sama. Spurning samt hvort það gangi upp því ég á ekki lengur hleðslutæki fyrir myndavélina mína. Ég verð þá að treysta á aðra þangað til ég kaupi mér nýtt. Gosh, eins gott að það sé hægt. Hlýtur að vera samt. Eða hvað, er það? Ef ekki þá fer ég útá hlað í bað! Ég sagði það. En ég vil ekkert tað í mitt bað! Þar hefurðu það! Oj afsakið.

Mig langar í koss.