Hommi eða ekki hommi? Vad fan spelar det för roll?!
Hvað er að gerast í heiminum í dag? Mér finnst ég ekki lesa neitt annað en hræðilegar fréttir um brot gegn eða á samkynheigðum og þeirra mannréttindum. Sem snúast þá um jafn sjálfsagða hluti og að draga andann eða labba óafskipt úti á götu. Hvað vakir fyrir fólki? Snýst þetta um óöryggi geranda, meinloku eða illsku. Ég á ekki til eitt aukatekið orð. Fyrst var það nú bara bjánaleg frétt sem kom mér fyrir sjónir. Að umboðsmaður barna í Póllandi væri með njálg í rassinum útaf Stubbunum og mistah tinky winky sem rímar við kinky og gengur um með handtösku. Hvað með það þó hann sé hýr á brá? Ég get ekki séð að það ýti undir samkynhneigð hjá einum né neinum ef hún er ekki til staðar fyrir. Svo er það náttúrulega garanterað að einhver samkynheigð börn horfi á Stubbana og þá kalla ég það bara gott mál að þau finni fyrir góðu gemensömmu væbi einhverstaðar frá. Það bjánalegasta við þessa bjánafrétt er það að EU bjánarnir styðja þennan Pólverja í þessu máli. Til hamingju með það. Hibb hibb! Bjánar.

Öllu alvarlegra er það sem hæglega má kalla ófremdar atvik sem átti sér stað í Stokkhólmi í gær. Þar var ráðist að konu sem var að vinna sína skrifstofu vinnu hjá RFSL. RFSL eru einskonar samtökin 78. Þessi kona endaði með öxi í höfðinu. Nú vona ég það að sá sem fyrir því stóð fái frímiða á Klepp og þar verði græddur í hann nýr innri maður. Herrejössus.. það er erfitt að trúa á hið góða í öllu og öllum þegar maður heyrir svona hluti. Svo ég tali nú ekki um það hvernig samkynhneigðir eru bældir niður í Moskvu, þar er óvíst að fólk komist heilt heim ef það hættir sér útá götu. Mér fallast hendur.

<< Home