Bobbingar í svalamó
Ooooh þessi helgi var svo skemmtileg og góð að ég verð gelgjuleg þegar ég hugsa um það. Skaufi klikkar seint og Linda stendur ávallt fyrir sínu, þessi elska. Sólin kitlaði kroppinn og félagskapurinn sálina. 25 stiga hiti.. det är ju aldrig fel! Eins og gefur að skilja sátum við stöllur úti á svölum alla helgina hálf naktar. Svona þegar við höfðum okkur í föt, þá valhoppuðum við um miðbæinn með ís í annarri og H&M poka í hinni, heimsóttum kaffihúsin og skoðuðum mannlífið. Þegar kom að eldamennsku var að sjálfsögðu allt gert from scratch.. matseðillinn stóð saman af spagetti carbonara ala Min mat og baguette.. formað eftir innblæstri frá staðarheitinu.. einnig fengið úr þeirri úrvalsbók og ekki skorti salat til. BBQ kjúlli með nettri grænmetissveiflu var töfraður fram á laugardagskvöldið og honum sporðrennt útá svölum.. en ekki hvað. Næturlífið lituðum við með þekjulitum eftir kjúllann og skemmtum okkur gríðarvel. Í heildina séð var allt undursamlega unaðslegt.. með rjóma á og þarfnast ekki frekari útskýringa. Frábært að ég sé að blogga um það hvað ég eldaði.. á eitthvað erfitt með það að lýsa stemmningunni svo ég tók það ráð að lýsa matnum. Gott það. Kannski er ég að forðast dramatíska einlægnina sem á það til að taka af mér völdin.
Myndir segja meira en milljón orð!
Örebro tók á móti mér með sínum hversdagsleika, sem er nú ekki svo slæmur heldur. Lestur og lollagangur.. blankur stúdent og alltaf svangur.

Takk fyrir helgina ljúfa Lindex !


<< Home