fimmtudagur, mars 29, 2007

Fransar och ögonbryn

Dirrindíið er dillandi og leikur sér að því að kæta mín eyru. Ekkert jafn yndislegt og að vakna við lítinn sólargeisla á morgnanna sem kitlar nefið og heyra smáfuglana syngja fyrir utan. Mmmmh vor. Hér er vor og 14 stiga hiti í skugga.. 25 í sól. Of gott til að vera satt næstum, enda er ég farin að ganga um berfætt í sumarskóm og pilsi. Ekki Svíarnir en ég meina..

Í gær eftir skóla fór ég í heimsókn til Brynju og Valla, passaði fyrir þau í nokkrar sekúndur, litaði augabrúnirnar á Brynju með tilheyrandi andlitsnuddi og klippti toppinn á Dagrúnu.. hárin kitluðu hana í nefið og hún borðaði nokkur, en var ótrúlega dugleg að sitja kyrr. Frá þeim fór ég með pítsuofn, kaffikvörn.. fullt af kaffiskeiðum, mjólkurþeytara, og munstur til að gera crazy flippaðar myndir í froðuna.. fjórar flíkur og gardínu. Ásamt því að fá besta fiskrétt sem um getur. Hvílíkt gæðafólk sem hleður námskonuna búsáhöldum og klæðnaði.. ég á ekki til eitt aukatekið.. klæðir og fæðir eins og maðurinn sagði. Ekki nóg með að þau séu svona góð og gjafmild heldur er Brynja líka ógó mjó og Valli er alveg helmassaður. En þau eru að flytja.. skrattakornið, ég bölva því í laumi í hvert skipti sem ég hugsa um það. Yndislegur eftirmiðdagur/kvöld með gramsi og róti í gömlu dóti sem ábæti.

Í dag ætla ég að læra og leika svolítið við sólina.