miðvikudagur, mars 14, 2007

Gulan og Glitnir

Jæja.. þetta orð á vel við. Jarðaförin er búin og Lilý er lite lúin. En öll að koma til.

Nú er ég farin að taka til við lesturinn og það er ágætis tilfinning. Hvort það verður ágætis tilfinning að mæta í prófið að morgni dags þess 22. mars er ógerningur að segja til um á þessari stundu en við skulum krossa fingur og vona, já svona! Ég er þessi kona sem vona.

Þeir eru indælir sem fyrr heimahagarnir og ekkert undarlegt að þeir togi í mann endrum og eins. Faðmur fjölskyldunnar er hlýr og góður, svo góður að maður hrýtur af unaði og yndi. Blómin umlykja okkur þessa dagana, fylla vitin vorilmi og slá gulum bjarma á hörund þeirra sem ilminn sækja. Hvort þetta séu asíu áhrif eða tilraun til þess að boða komu vorsins með sól í haga og lof um betri daga veit ég eigi. En hlægja má að þessu þegar búið er að blanda tilfinningaflóruna ótta. Amma ertu komin með í lifrina? Amma dastu á hausinn? ..hvað er að sjá þig í framan Amma? Liljurnar fara svona með Byggðavegsbúa, hvílík ósköp. En þær eru fallegar, undurfallegar.

Mér finnst að Sparisjóðurinn ætti að tékka á Glitnisauglýsingunum og gera svo eitthvað í málunum. Ég fæ í magann og hleyp á Gustafsbergið í hvert sinn sem þessi setning hljómar: ,,þó þú sért eitthvað eldri en ég" og hérna.. ,,ég er ekki bara einhver kennitala" æjæjæj. Þó skömminni skárra en sænsku sveppaflóruauglýsingarnar. Já seisei og svei.