mánudagur, mars 05, 2007

Afi pafi eplasafi



Maðurinn mikli sem eitt sinn dvaldi undir bláhimni, er floginn uppí hann frjáls eins og fugl með vængi. Með vængi sem voru orðnir svo þreyttir en fengu nú kraftinn sinn á ný. Á öðrum stað, nýjum stað og vonandi betri stað. Elsku afi minn, hetjan sem gafst ekki upp. Maðurinn sem ætlaði að lifa lengst allra manna lét loks undan. Ég vona það af öllu mínu hjarta að hann fái frið og geti flogið að vild, hvert sem hann vill. Ég vona líka að hann komi fljúgandi til mín endrum og eins og hjálpi mér þegar ég er lítil í mér, þegar lappirnar verða linar. Ef einhver kann ráð sem léttir manni að standa í þær og halda göngunni áfram, þá er það hann. Tárin trítla niður kinnarnar og hugurinn er heima. En þökk sé guði fyrir frábært fólk sem stendur þétt í kringum mig í Svíþjóð. Ekki veit ég hvar ég væri án þeirra. Svo kemst ég líka heim fljótlega. Fjarlægðin gerir fjöllin blá, en af henni eru augun mín grá.






Kóngstaðar kóngur í fjölda mörg ár,

farinn í fjarskann með vonir og þrár.



Glettinn, góður, gamall og grár.

Fallegur afi minn framkallar tár.





Amma mín og allir tárapúkarnir heima, það verður gott að taka utan um ykkur.

Ást sem aldrei fyrr,

Lilý