mánudagur, apríl 09, 2007

Hún á afmæl'ún Bebba, hún á afmæl'í dag!

Jesús góður, ég get svo svarið það.. það sem maður er orðin lélegur í þessu bloggi. Hvað varð um eitt á dag kemur skapin'í lag, eða tvö svo þú piprir ekki. Þessir frasar eru klárlega flognir útí veður og vind. Þykir mér það synd.. og kalla mig því kind! Eins og ég var nú þessi uppsprettu lind tilgangslausrar þvælu. Hvað um það. Nú er ég byrjuð hér á bloggi og ætla að koma mér að efninu..

Hjá mér eru góðir gestir. Helena Hafþórsdóttir einnig þekkt sem Helus Hansen og Hekla Björt Helgadóttir e.þ.s. Hekill Gustavsen. Þessar tvær voru að koma frá South- mitt - und norður Amerika þar sem þær spóluðu um í eyðimörkinni.. skáluði í kampavíni á þaki tuttugu hæða húss.. gengu um í lifandi lava.. klöppuðu lama.. lausar við allt drama og búnar að skemmta sér vandræðalega vel hvert sem þær komu. Ég fæ ekki nóg af sögunum þeirra.. sem er nú lukka því það hefur ekki samkjaftað á þeim síðan þær komu! Neih nu griner jag! Hvílík gleði og hvílíkt yndi.. slíkur unaður sem það er að hafa þær hefur ekki gert vart við sig svo langt sem elstu menn muna. Það er ekkert minna. Eins og maðurinn sagði nú hérna í den tid.. the old are gold, og þykir mér það svo sannarlega vera vel við hæfi. Reyndar minnir þessi vera þeirra hérna mikið á dvöl mína í París. Við höfum ekki mikið verið að stressa okkur og meira notið þess að hlægja að litlu hlutunum.. svo gott. Best.

Ég ætla nú ekkert að fara að gera útaf við mig.. né þig hér eftir hléið dágóða. Því hef ég þetta ekki lengra að sinni. Helus fer á morgun og það er eins gott að njóta litla dvergsins meðan maður getur.

Ástardass til þín..
og til hamingju með afmælið Bebba mín!