laugardagur, apríl 21, 2007

Fabet

Þessa helgina ákvað ég að helga mig bókunum. Ekkert nema gott um það að segja, fyrir utan að ég nýt ekki sólarinnar úti á meðan. Skítt veri með það. Hinsvegar er spurning hversu mikla athygli ég var með við lesturinn þegar ég var að lesa um það í bókinni um männskliga samhällen hversu mikilvægt það er nú fyrir mannfólkið að kunna að lesa og skrifa, þar sem það er nú gengið útfrá því allstaðar í okkar samfélagi að fólk sé þessum eiginleikum gætt. Skilti, dagblöð, internet og svo framvegis gera það að verkum að ef maður ekki kynni að lesa þá væri maður villuráfandi sauður, eða guð minn almáttugur ég er komin með pirring í magann vegna skorts á íslenskum orðum.. beroende av hvað er það á íslensku? Ég veit það alveg, er bara eitthvað heft hérna núna. Þurfandi er eina orðið sem kemur upp í hausinn á mér. Guð hvað þetta er óþægilegt.. en allavega það er semsagt til hugtak fyrir þessa stöðu eða það fólk sem ekki er fært um að lesa og skrifa. Analfabet. Það sem ég hugsaði var hvur skollinn er fabet og hvaða sjúki maður tengir þetta fólk við rassgat? Spurning hver er sjúk í hausnum..

Háður! ..það kom :D