Veiveiveiveiveiveivei ó sei sei!
Rólegan æsing sagði maðurinn þegar ég fór útá svalir og öskraði: ,,ég er búúúúúúúúúúin!!". Nei ég var ekki að kjúka.. ég var að klára heimaprófið. Kvekyndið sem hefur gert það að verkum að ég er búin að sitja sem hellisbúi speksveitt í sjödaga. Skrifandi frá mér allt líf og misþyrmt aumingjans tölvunni minni, sem vill eingöngu vel. Ahh en nú er það búið, gott sem það er. Eins gott að þeir fari um það ljúfum höndum og gefi mér svo broskall. Annars verð ég bara reið.
Á morgun ætla ég að leyfa mér að rölta um í bænum með sólgleraugu á nefinu.. golu í hárinu og ís í hendinni. Jafnvel lítinn h&m poka, dinglandi mér við hlið sem þægur hundur. Það er festival í skólanum útaf fyrirbæri sem þeir Svíarnir kalla Valborg. Það snýst aðalega um það að taka til í garðinum hjá sér og brenna ruslið.. eða veturinn burt og brosa mót sumri. Ætli við Íslendingar séum ekki skrefinu á undan mr. Svensson í þessum málum og búin að halda uppá sumardaginn fyrsta! Svei mér þá..
En nú sagði tölvutetrið battery low, ég hló áður en tölvan dó! Nei.. ég vil nú ekki að það gerist, svo ég segji þetta gott í bili. Held nú að ég mér sili.. undir mjúka sæng og á einum væng, fljúgi inn í draumaland.. sem á sér hefur engan hæng!
Ást í gallonum!

<< Home