laugardagur, maí 26, 2007

Sykurhúðuð sæla




Hvað er betra á laugardegi en að fá sér skonsur í morgunmat.. með miklu smjöri og vænni sneið af osti. Neihh ég veit það ekki heldur. Verandi í víðum buxum semí úldin og hlusta á Sofie Zelmani syngja með sinni seiðandi.. já neihh ég veit það ekki. Þess má einnig geta að það er sól úti og Bara Vara kallar. Það er aðeins eitt sem gæti hugsanlega gert stöðuna betri. Ef ég hefði skilað hjuts heimaprófinu í gær, þá væri þetta fullkomið. En það er nú einmitt þannig sem það er. Ég sit reyndar á mínum óæðri í heimi blekkinganna. Læt sem lífið sé fullkomið, en svo lít ég upp í hinn raunverulega himinn og sé þar ekki sólina. Því að stærðarinnar stærðfræði/eðlisfræði próf skyggir svoleiðis á hana að óvíst er að segja hvort sjáist nokkurtíma til hennar á ný. Já seisei og svei. Það væri þó ekki nema það birti til á fimmtudaginn þegar yfirlýkur. Föstudagurinn þar á eftir kemur með kitl í maga.. ferðafiðring og sælustrauma því á laugardaginn ætla ég að skrölta sem ormur í lest með Lindu minni til kóngsins Köben. Óska ég hér með eftir samverustundum með öllum þeim Kaupmannahafnar kálfum sem þykjast þekkja mig. Verð frá laugardegi til miðvikudags. Vænti ég þess þann miðvikudagseftirmiðdag að þeir bræður Skari mó og Sgeiri skó komi með útbreiddan faðminn og kremji mig í köku. Á Akureyri ætla ég svo að dveljast sumarlangt.. hvílík sæla!

Margt hefur hent síðan ég bloggaði síðast. Eva mín sæt og fín kom í heimsókn til mín. Yndislegt var það :) Ég tók heilan helling af myndum og henti þeim öllum inn á myndasíðuna mína, ekki nóg með það heldur fylgdi strollan af öðrum myndum með sem voru allar teknar einhvertíman í maí. Get ég stolt sagt að ég hafi skrifað texta undir hvert og eitt einasta kvikyndi og er það sennilega í fyrsta og síðasta sinn sem það gerist.

Það þarf nú varla að segja frá því að við Elíasardóttirin þræddum verslunargöturnar í bænum með löngu stoppi í Hennes.. ó jessen. Sé fyrir mér kjálkann á mömmu detta niðrí gólf, enda hefði hún aldrei búist við þessu. Við gerðum ýmislegt annað að afklæðast og íklæðast inní reyndar þrusugóðum mátunarklefum H&M.. þema helgarinnar var að njóta lífsins, hvort sem það var:



Við kastalann..



Í Wadköping..



Í góðum gleðskap..



Þar sem ég bauð Jonasi uppá hákarl og hann leyfði mér að smakka nefbroddinn á sér í staðinn..



Við Svampinn..



Þar sem við sameinaðar stóðum uppí Svampinum :)



Eða við Naturens hus...


Sætari en sólin!


Takk fyrir frábæra frænkuhelgi elsku ljósálfur :*