þriðjudagur, desember 11, 2007

Fiðluhansi


Skari longhair er 18 í dag, hann lengi lifi HÚRRA! HÚRRA! HÚRRA! Ekki nóg með það, ónei.. hann ber það líka vel og ef eitthvað þá batnar þessi öðlingur bara með árunum. Ég verð vonandi búin með peysuna sem hann fékk í ammlisgjöf áður en ég fer.. það myndi ilja mér á tánum að vita af honum innpökkuðum í "ástíhverrilykkju" lopa.

Í tilefni dagsins fórum við á Manhattan music club. Þar var open mic night þetta mánudagskvöld og nutum við misljúfra tóna. Einn maður sem tróð upp er mér sérstaklega minnistæður.

Gráhærður sat hann á hringlóttum kolli. Mundaði bogann og strauk fiðunni líkt og um ástarmök væri að ræða. Hann sat í keng og lagði sig allan í músíkina, týndi stund og stað. Í gallabuxum, blárri skyrtu og röndóttu vesti sem konan hans hefur eflaust ofið utan á hann. Maður með ástríðu. Þegar hann hafði lokið sínum fluttningi á frumsömdum verkum, settist hann með öl, einn við borð hliðiná sviðinu og var enn á einhverjum allt öðrum stað. Heillandi, sætur sykursnúður með sál.

Ég eyddi peningum í dag. Til hamingju. Takk.

Ég ætla að gera það á morgun líka.

Almennt leggjast einkunnir vel í mig. Vei fyrir því.

Sgeiri Kan er maður massaður í drasl og fer létt með að labba um á höndunum eins og við hin á fótunum. 5 kúlprik.

Nú rétt í þessu birtist aulýsing í sjónvarpinu. Eflaust anda margir léttar eftir áhorfið, því það er komið á hreint hvar hægt er að láta taka mynd af hundinum sínum eða ketti, nú eða páfagauk.. jafnvel froski.. í fanginu á Santa. Almáttugur!

Hér er til munnskol sem á að gera tennurnar hvítari. Það er selt í bensínbrúsum og mann svíður svo í munninn að maður grenjar eins og meðalgreindur múlasni yfir amerískri bíómynd. Munnurinn skiptir svo um ham daglega og hvítar skinntæjur festast í tönnunum á manni. Oj.

Ég ætla að kaupa mér botox á ebay.

Vatnið í Kanada er vont.

Sodavatnið er gott.

Allt er ekkert mál.

Mig langar í fisk.