Aumingi
Ég hlýt að vera komin með legusár. Legið hef ég í rekkju minni meira og minna frá því í gærkvöldi. Eftir að hafa engst um af magaverkjum í fósturstellingunni.. í rúmi, lazy-boy og á baðgólfinu, milli þess að ég kastað upp og niður í Gustafsbergið var ég vægast sagt búin á því og svaf frá mér allt vit. Nú veit ég ekki neitt. Mig dreymdi að ég skók mér til á skrifborðsstól. Í vöku sauð amma handa mér það sem best er í maga. Egg og grjónagraut. Hvergi hugsað betur um velferð manns. Amma: alúðin uppmáluð í heimsins fallegustu litum með smarögðum og kristöllum tyllt hér og þar frá toppi til táar til að undirstrika það og minna á að slík gersemi er vandfundin. Maginn mætti alveg fara að róa sig. Líður eins og hann hafi verið hjúpaður súrum gúrkusafa sem síðan smaug inní veggina og sagðist aldrei ætla að fara.
Mig langar að horfa á nýjasta næturvaktarþáttinn og hlægja.

<< Home