fimmtudagur, október 25, 2007

Goodbye Murphy!


Hjalti Jón tók Murphy og sneri hann úr hálsliðnum. Ánægð með þetta. Það greinilega borgar sig stundum að tuða á hljóðlátan hátt. Var ég ekki annars hljóðlát? Nú birtast eins og móðir mín góð benti á, forníslensk hávamál sem setja menningarlegan svip á andyr okkar Verkmenntskælinga. Lilý litli maingur, alsátt með framvindu málsins. Þótti mér það hinsvegar heldur merkilegt að faðir minn stæði á bak við mistah Murphy. Það segir okkur það að ég hef kallað föður minn óprúttinn auðnusauð. Vel gert. Heeemm. Hann lætur sér þetta vonandi bara að kenningu verða og fer að endurskoða skilgreiningu sína á bjartsýni. Pabbi minn, ég elska þig.

Mig langar rooosalega að væla og skæla eitthvað en ég hef samt enga ástæðu til þess. Er bara í þannig stuði. Algjörlega óviðkomandi Murphy og hans máli. Bara ég í eymdi og aumingjaskap að vorkenna rassi mínum. Óttarleg neikvæðni er þettað! Það er svo ótrúlegt hvernig þetta sálarlíf getur leikið mann grátt. Þó maður búi í hreiðri þar sem breytt er yfir mann teppi ef maður sofnar með prjónana í kjöltunni, og þó maður þekki umhverfi sitt eins og eigin barm, þó maður sé hamingjusamlega ráðin í vinnu og njóti ásta með námi sínu þá þarf maður samt að grafa upp einhverja kvíðafulla hlið á örlitlu máli sem maður gerir sér stórt og dökkgrátt. Bölvað er þetta svartsýnishjal. Bölvað er þessi ónota tilhneiging. Fari hún norður og niður. Inn með birtu og trú og sjálfstæði og habb habb habboga!



See the bright side, a really beautifull day today, every day.


Afsakið, þetta var nauðsynlegt fyrir birgðarból brjósts míns. Ég vildi að ég hefði gert þessa mynd sjálf. Mér finnst hún falleg og uppörvandi.

Ég á flugmiða.
Hann leiðir mig ljúflega,
Hann kemur mér til..
að iða.

London ég lít við þér,
Guelph takt'á móti mér!