föstudagur, júní 29, 2007

Bold like Britney

Þær eru strembnar þessar ákvarðanir. Draga endalaust af efasemdum og ringluðum rökum á eftir sér sem erfitt er að koma jafnvægi á og kenna að ganga öðruvísi en í hringi með lappirnar á eftir sér.



Ístöðuleysi, óákveðni, kæruleysi?

Villuráfandi sauður?

Svartsýni og bjartsýni.

Hjartsláttur, svimi, ofbirta..

Svart



Tilfinning, sjálfsþekking?

Óvissa.

Víðátta.

Möguleikar, tækifæri.

Bjart.



Maður veit ekki ævina fyrr en öll er. Þetta sagði maður-inn- og ég held ég verði að taka hann á orðinu. Af hverju þarf maður að hafa allt rúðustrikað fyrir framan sig? Hver segir að maður þurfi þess? Kannski er ástæða fyrir því að ég kann ekki á Exel.

Ég ætla að hætta í heyrnarfræði, allavega í eitt ár. Ég er þannig að ég hef aldrei komist upp á lag með skriðsund. Hef alltaf synt hægar en allir hinir og tekið það á bringunni. Ég veit ekki hvort ég komist nokkurtíman upp á lag með þetta blessaða skriðsund. Enda á ég hvorki bíl né íbúð. Þetta ár sem framundan er ætla ég að synda um í ólgusjó óvissunar og reyna að rekast ekki á kúkinn í lauginni. Hver veit nema ég syndi fram hjá honum og finni bakkann minn. Ef það gerist þá ætla ég ekki að hrækja í hann heldur hífa mig upp og setjast þar. Horfa uppí sólina og busla í lauginni í dágóða stund. Standa svo upp og spranga um eins og den lille gerði hérna í den tid. Hamingjusöm að eilífu amen.

Annars dreymdi mig um daginn að ég hefði tekið rakvélina, snoðað mig og því næst pissað standandi. Hvað það þýðir veit ég ekki.

Að ég eigi að fara í hárgreiðslunám? Að ég þrái að vera karlmaður? Að ég líti upp til Britney? Að ég þrífi of mikið af klósettum og hafi óbeit á því að karlmenn pissi standandi? Eða bara að mér sé alltaf heitt á hálsinum og mál að pissa.

Takk fyrir tíkall.. það er sól úti.