mánudagur, júní 18, 2007

Kætumst meðan kostur er..


Maður minn,
það ég man í þetta sinn,
hve gott það er með koss á kinn.
Frá hverjum þeim, þá er vinur þinn!

Fólk og aftur fólk sem er mér svo kært. Hitti svo mikið af því þessa helgi að ég er löngu hætt að telja. Nostalgían ætlaði líka að gera útaf við mig á tímabili og ég fékk kökk í hálsinn þegar ég sá fegurðina ljóma af nýstúdentunum í höllinni í gær. Það sér það hver maður að menntaskólarembingurinn tók sér bólfestu í mínum rassi og veit það maður og annar að hann var guðvelkominn. Það er samheldnin sem er svo falleg og lífsgleðin. Það myndast einhver ótrúleg lífgleði og þó ég tali nú ekki um sigurþrekið, þegar þetta fólk kemur saman undir merkjum þessarar stofnunnar. Það er það sem snertir mig og heillar.

Morgundagurinn stendur og bíður mín með tuttugusta og annað aldursárið í rassvasanum, bílferð með aní, david and weekend wantstone (bammbamm), allar hunangs bollurnar mínar sem borgin geymir fá að skreyta daginn og air ætla að gæla við eyrun mín. Gott er það, betra verður það ekki.