Hvað er í pokanum?
Vissulega var flugið niðrí Eyjafjörðinn yndislegt. Ferðin útúr flugvélinni og í gegnum kompuna sem Akureyrarflugvellingar skilgreina sem fríhöfn var eftirminnileg. Ég var með ein 20 kíló í handfarangri. Get ég sjálfri mér um kennt og skammað rass minn fyrir skipulagsleysi enn og aftur. Gefandi samskipti mín við rass minn.
Það ber hæst að nefna að Skari nokkur mó tók á móti mér síðhærðari sem aldrei fyrr. Ég þá búin að tilkynna hálfri Svíþjóð það og einum þriðja af Danmörku að mistah mó væri búinn að snoða sig. Hann laug því og hafði gaman af. Skuuunkurinn.
Fyrsti maðurinn sem ég sé þegar við keyrðum frá flugvellinum var enginn annar en bæjarhetjan og hlaupagarpurinn mikli. Hinn eini sanni Jón. Með lokkinn á sínum stað og í styttri stuttbuxum en Ísak á leiðinni til Krítar. Gott að sjá hann.
Ég gæti vel bloggað um Köben og allan unaðinn þar. Grön tuborg og grillade pölser.. kirsbær og direktörsnegler.. sol og 25 stiga hita.. power shopping.. tívolí.. lindu og guðnýju.. jen -sen- s böffhus.. guff í hári.. fríar strætóferðir.. skokk í skóginum.. sömodsbolsjer.. huldu og salongen.. nyhavn og þýska túrista.. fulla svía í köben.. málheltni mína og margt fleira en ég ákvað frekar að vera með netta upptalningu á því og koma með sögu af bræðrum mínum í staðinn..
Ég og mistah longhair vorum á leiðinni heim af vellinum áðan þegar Ásgeir hringir. Þeir félagarnir eru búnir að vera einir heima í að verða viku. Ég skil ekkert um hvað samtalið snerist, en það var alltsaman mjög dularfullt og Skari bað Sgeira að róa sig niður. Þá er búinn að vera þessi ólifnaðar fnykur heima síðustu þrjá daga og þeir bræður hafa ekki með nokkru móti getað áttað sig á því hvaðan hann kom. Það fór þó ekkert á milli mála að hún var allsvaðaleg inni hjá Ásgeiri. Skara þótt það fínt taldi það nokkuð víst að Sgeiri hefði gleymt að taka nestisboxið uppúr tösku einhvertíman í fyrra og í því lagi vel blaut og fagurgræn túnfisksamloka gróin við boxið. Ásgeir harðneitaði því, enda búinn að snúa öllu við margoft í herberginu í þeirri veiku von um að finna skúnkinn. Hann og frúin hafa ekki getað sofið sökum óþefs síðustu nætur og nú var hann gjörsamlega kominn með nóg. Hringir spiksveittur eftir leitina miklu í Óskar og segist vera búinn að finna þetta. Hann var hinsvegar ekki búinn að líta ofan í pokann þar sem hann var hræddur um að á sig yrði ráðist ef hann svo mikið sem gægðist oní í gegnum litla rifu. Þegar við renndum upp að húsinu var félaginn búinn að henda ógeðinu útá bílastæði í pokanum og sat sjálfur hinumeginn við götuna tilbúinn að hlaupa í burtu ef eitthvað skriði uppúr. Við fundum lyktina þegar við beygðum inn götuna. Þegar ég steig útúr bílnum var ég svo nærri því að æla að ég vissi ekki hvert ég ætti að snúa mér, og að faðma ásgeir var eins og að stynga hausnum ofan í slor. Ég var sjálfskipuð í það að líta ofan í pokann, þar sem bræðurnir voru með eintóman kellingaskap. Við mér blasti einhver sá mesti viðbjóður sem ég hef séð og lyktin var 100 sinnum verri. Mysterian var leist! Þetta var ógeðslegur úldinn fiskur. Úldinn fiskur sem einhver hefur fyrir mistök sett upp á hillu við frystikisturót og gleymt þar í annríki sínu.
Honum var haldið í góðri fjarlægð frá bílnum útúm gluggann og hann keyrður útá krossanes. Þar er öllum mávum sem vettlingi geta valdið boðið til veislu í kvöld. Hér í húsinu stinkar hver öreind. En það má þá líta á það sem svo að menn geta rekið við af vild án þess að nokkur taki eftir því. Reikna með því að það verði opið út í nótt. Þvílíkur viðbjóður.
Annars var fínt að koma heim, finn það á mér að þetta sumar verður hið besta.

<< Home