Elefantpung

Bara búin að borða graut og godis í dag eða geeeódeeis eins og Brynja og co eru örugglega farin að segja það.. sveiattan fyrir að lämna Örebro svona eins og kálfar og wannabe rassálfar. Nei nú segji ég bara svona af því að ég sakna þeirra. Bagalegt er ástand á Brallalausri brúnni.
Tannpína og magaverkur, skál fyrir þeim hjónum! Kjúlli í kvöldmatinn.. vona að hann nái að hrekja ræflana í burtu.
Próf á morgun, vildi að ég gæti sagt vei við því. Það get ég ekki. Það er bara þannig.
Klassfest á föstudaginn. Vei!
Köben á laugardaginn. AAAAjúhú! Vúhú og vei!

Akureyri á miðvikudaginn! Það er ekki hægt að blogga fagnaðarlæti sem eru nógu lýsandi og nógu æst. Heeeela hela sommaret. Ég frétti meira að segja að snjórinn væri farinn að syngja sitt síðasta. Eftir snjóflóð og vitleysisgang í veðráttunni síðustu daga. Guddi fær gott orð fyrir það. Rúgbrauðmeðrjómaá.

Já og svo eru Air að spila í Laugardalshöllinni á ammmlinu mínu. Karin verður jafnvel í heimsókn þá, hugsanlega líka Camilla og mjög sennilega Malin. Himininn verður svo skærblár að pikknikk verður óhjákvæmilegt. Bros hringinn og fiðrildi í maganum. Ég er að reyna að gráta ekki yfir Roskilde. Flaming lips að bætast við, hverjum er ekki sama. Piff.

Eins og sést er þetta "ég er að fara í próf en get ekki hætt að hugsa um allt annað blogg" skamma ég rass minn fyrir það.
Panta fá að hlýða á lestur Elmars Geirs á "Lexíu stóra héra" þegar þau hjúin koma heim. Alltof langt síðan síðast.
Og eitt enn.. nú kemur saga. Ég var að labba í bænum í síðustu viku, steig á eitthvað sem ég hélt í smá stund að hefði verið kúkur og rann svona illilega til. Sótbölvaði og leit niður fyrir tærnar mér. Á hverju rann ég? Jú bananahýði! Ekki svo langt síðan ég horfði á einhverja teiknimynd og einmitt þetta gerðist fyrir bláan kött (ógeðslega fyndið atriði). Ég býsnast yfir því og segji: ,,já einmitt, hvað er málið með þetta! Það er ekki eins og fólk sé alltaf að renna á bananahýðum hisst og her!" Ég át það ofan í mig og svelgdist á.

Þegar ég var að leita að þessari mynd fann ég þetta! Langar í svona, þolekki þegar maður setur gulan og girnilegan banana ofan í tösku áður en maður fer í skólann, tekur hann upp um þrjú leytið og hann er orðinn eins og einn langur lambaspörður á litinn. Mjúkur að innan og allskostar ólistugur. Nei þá kemur bananahulstrið góða sterkt inn. Ætli þetta fáist ekki í sjónvarpsmarkaðnum?

Æji hundskastu Lilerladamsdóttir!

<< Home