miðvikudagur, júlí 11, 2007

Soðin ýsa og sönglað með fréttastefinu

Svona miðvikudagskvöld. Heimilisleg og svo sannarlega íslensk.

Í vinnunni í dag leit ég út um gluggann á þriðju hæð í blokk. Ég var með tuskuna á lofti, talandi við flugurnar. Erfitt að koma vitinu fyrir þessi kvikindi, og óþolandi að þurfa að þrífa eftir þær skítinn í hverri viku. Þegar ég verð stór ætla ég annað hvort ekki að hafa neinar flugur sem gera dalmantíu pattern á gluggana í mínum húsum eða þá ætla ég að vera búin að hanna og koma í framleiðslu ótrúlega sniðugu fluguklósetti og ala þetta lið almennilega upp. Þar sem ég stóð við þessa launuðu iðju mína stillti ég fókusinn af skítnum og horfði útum gluggann. Þar sá ég eldri mann og krúttlegan mjög. Hann var úti að viðra sig og sína ektakvinnu við gosbrunninn í Víðilundi. Það var glatt á hjalla og augljóst að þau höfðu ekki verið að hittast í gær. Maðurinn hafði ofan af fyrir þeim, og mér, með ýlustráii. Merkilegt hvað bernskan lifir. Þetta fannst mér krúttlegt. Góð saga.

Ég elska Kaldbak. Er sannfærð um það á svona kvöldum þegar sólin skín og breytir raunveruleikanum í málverk og vatnslitamyndir, að einhver sniðugur hafi hreinlega komið Kaldbaki fyrir þarna útí firði. Sá hefur verið með fagurfræðina á hreinu. Kann ég honum bestu þakkir fyrir vel unnið verk.