fimmtudagur, júlí 26, 2007

Vinnan

Já eða Kaffi og kleinur eins og ég kalla hana.

Að koma hingað heim haldandi það að maður geti haldið sér í skikkanlegu holdarfari með því einu að hjóla í vinnuna, skúra skrúbba og bóna eins og sveitt kornhæna og farið útí kjarna í léttan kvolití göngutúr við og við, er jahh við skulum bara segja gjörsamlega ómögulegt. Óhugsandi. Ógerningur. Ekki hægt í þessari vinnu. En allavega, eftir að hafa þáð kaffi og ómögulega getað neitað kleinum, vínabrauði, snúðum og nefndu það bara.. ef það var sætt og fitandi þá var mér boðið það, já þá fitnaði ég um einhver grömm. Varð súrari en skærgrænt epli, reitti hár mitt af pirringi og tók þá afdrifaríka ákvörðun að þetta hreinlega gengi ekki lengur. Grípa þyrfti til róttækra aðgerða, ég fór að þvinga sjálfa mig til að segja: ,,Nei þakka þér ómögulega fyrir, en þakkað þér samt og takk" við hátt í níræðar konurnar sem flestar eru búnar að smyrja eitthvað góðmeti fyrir mig kvöldinu áður en ég kem. Það er náttúrulega bara ómannúðlegt að neita slíku boði, það veit ég vel. Það hefur yfirleitt tekið mig um 15 mínútur að koma elsku tjellingunum mínum í skilning um að inn fyrir mínar varir fari ekkert nema þessi banani sem ég tók með mér og svolítið kaffitár. Það hefur þó gerst oftar en einu sinni að ég hef staðið í strögli við þær allar þessar 180 mínútur sem ég er á hverju heimili með tuskuna á lofti. Þá með orð eins og lystarstol og sultardropi hangandi yfir mér í hverju horni. Þetta tekur á.