sunnudagur, júlí 15, 2007

Ákvarðanir

..eru eitthvað sem ég kann ekki á almennilega. Fyrst var það að ákveða að hætta í heyrnarfræði. Það tók rétt um ár. Svo var það að ákveða hvar ég æti þá að hola mér niður. Heima? Í Köben? Í Sverige áfram? What to do, what to do?! Jú.. ég ákvað þarna einhvertíman aðeeehh fara að vinna í álverinu á Reyðarfirði, það hvarflaði nú að mér að sniðugt væri að fylgja das fam til Kanada, svo daginn eftir var ég komin á það að fara á sjó og gekk virkilega það langt að ég sótti um á öllum bátum sem fara frá Skagaströnd og hjá Samherja, daginn þar á eftir lá leiðin suður og hún gerði það í dágóðan tíma en skyndilega breyttist stefnan og lendingin varð Akureyrensis. Nú þykist ég, eftir að hafa gólað úlfur úlfur eða hér kem ég hingað eða þangað allt heila sumarið, vera búin að ákveða það að vera á Akureyrinni næsta vetur. Fara í Verkmenntaskólann og leggja undir mig listnámsbrautina textil svið. Húrreyh! Hvernig hefði verið að gera það bara fyrir 6 árum spyrja einhverjir jú nei þá hefði ég misst af svo miklu svo miklu miklu undur ótrúlega miklu. Það er nú bara þannig. En nú er ég reiðurbúin og tilbúin og undir það búin að fá að kynnast vefnaði og þrykki og útsaumi og fatasaumi og sjónlist og öllu mögulegu sem heillar mig alveg uppúr skónum. Þetta verður stórgott og ekki skemmir það fyrir að yndisleg amma mín og nafna ætlar að hýsa mig. Það verður ekki amalegt að hafa félagsskap af hvor annarri, báðar alltaf með eitthvað á prjónunum. Kannski pínu vandræðalegt þegar kemur að því að flokka póstinn. En það leysist líklega á farsælan hátt. Spurning um að taka upp yngri sem ættarnafn eða eitthvað þvíumlíkt. Neih það væri svo flippað! Omg lol myndi aldrei skiluru.. hahh!

En já... þannig fór um sjóferð þá




og svo er nú í pottinn búið.




Allt var þetta fremur snúið og veit ég eigi hvort þið trúið. Nú finn ég ekkert sem rímar lengur nema glúið og krúið og ég nei.. já neinei.

Falleg vika framundan.