Sæl, því ég Gæti.
Hér ríkir mikil mánudagsleti. Ekki laust við að gríðarleg bloggleti hafi tekið sér bólfestu í mínum skrif-anda. Enda veit ég svosum ekki frá hverju ég ætti að segja í skrifuðum orðum. Gæti byrjað á því að býsnast yfir vöðvabólgunni sem ég gerðist sjálfkrafa áskrifandi að þegar ég hóf stúdíur í Sjónlist 104 við Verkmenntos del ecola el Akureyrio.. einmitt. Gæti dásamað tilveruna og skólann, kennarana, aðstöðuna og verkefnin. Gæti tjáð ást mína á íbúum Snægils 1. Gæti jafnvel lofað ömmu mína í hásterrt. Gæti talað um haustið, haglél og blauta sokka. Ahh gæti gæti gæti verið létt á fæti, með dólgslæti.. í leit að æti eða fengið mér sæti. Gæti lika bara lagt mig eitt stundarkorn og látið mig dreyma.. um fjarlæga heima.. myndi þá ef til vill hest minn teyma og sjálfri mér gleyma. Byrjuð að sveima.

Það snjóaði í dag og ég er farin að hugsa um jólakortagerð.
Senn á enda september,
rennur allt í sandinn.
Nema þá í námið fer,
allur skrif-andinn.
Bah!

<< Home