miðvikudagur, október 24, 2007


Get ekki orða bundist..

Þegar maður gengur inn í andyri Verkmenntaskólans á Akureyri blasir við manni sjónvarpsskjár. Þennan skjá er einnig að finna á slóðinni http://hjalti.vma.is/ . Á hann eru settar hinar ýmsu upplýsingar og tilkynningar sem gagnast ráðvilltum námsmönnum. Þetta er allt saman hið besta mál. Nema hvað að á þessum upplýsingamiðli hefur einhver óprúttinn auðnusauður tekið sér það bessaleyfi að predika ókvæðis orðatiltæki yfir nemendum. Sá luri sem vitnað er í á að heita Murphy og mér virðist sem hann hafi einfaldlega dregið hinar ýmsu setningar útúr sínum óæðri enda. Hittarar eins og: ,,Hverri lausn fylgir nýtt vandamál" og ,,Ef eitthvað getur alls ekki farið úrskeiðis, þá gerist það samt", taka á móti manni og setja svip sinn á daginn. Þetta þykir mér gjörsamlega til háborinnar skammar. Að menntastofnun eins og þessi, sem annars er ágæt, geti ekki séð sóma sinn í því að hvetja námsmenn áfram með einhverju uppbyggjandi að morgni dags, eða hvenær dags sem er, er náttúrulega bara vandræðalegt fyrir skólayfirvöld. Hvar eru hávamálin og okkar gömlu góðu rammíslensku málshættir?

Vandræðalegt segji ég.

Sveiattann!