miðvikudagur, október 10, 2007

Með kjúkling í hornskápnum




Í dag er alþjóðlegur hreingerningadagur, í dag á Anna Richards afmæli og í dag er 10.10.07.


Í gærkvöldi prjónaði ég mér legghlíf. Hún var ekki bara ljót heldur svo forljót að rass minn leit ekki einu sinni við henni. Ég hætti snarlega við að prjóna hina og skammaði ömmu fyrir að segja ekkert við mig. Hún hló. Ég hló og svo hlógum við báðar í dágóða stund. Ég klippti kvikindið niður og smelli mér í sokkaprjón úr þessari vitleysu. Um tólf leitið fór ég inn að sofa. Nema hvað að á náttborðinu hvíslaði Flugdrekahlauparinn eftir Kahled Hosseini að mér að hann þyrfti að tala við mig. Svo ég ákvað að lesa eins og einn kafla. Ég gat ekki lagt hana frá mér fyrr en hún var búin og þá var klukkan 3. Koddinn blautur og ég búin að fara í gegnum alla tilfinningaflóruna. Hálf ringluð, stillti klukku og fór að sofa.

Í morgun vaknaði ég við dyrabjölluna. Einhver kann að spyrja sig.. "hahh var blaðberinn að gera dyraat?" eða "róa sig Jehovar" eða "say whaaaat.. hver dinglar svo snemma að morgni?". En nei, það var amma sem dinglaði. Hún er með dyrabjöllu inni í svefnherbergi hjá sér og ég er með hátalara í mínu herbergi. Verulega sniðugt system. 6 metrar á milli herbergjanna okkar. Þannig að ég vaknaði klukkan 8 og sá að í ringulreiðinni hafði ég stillt klukkuna 8.40 í staðinn fyrir 7.40. Vel gert. Ég skakklappast framúr og fæ mér banana. Mæti í módelteikningu úldin sem álfur og er sofandi þar til ég drekk fyrsta kaffibollan. Maxwell house kaffi er ógeðslegt. Fatasaumur og Listir og menning áttu hug minn allan fyrir hádegi en eftir hádegi sökk ég ofan í sjálfa mig, ein uppá listnámslofti og sagði ekki stakt orð við neinn frá klukkan tvö til átta.





Viðutan, virkilega viðeigandi vi vi vi har et stort badedyr i haven, orð til að lýsa þessum alþjóðlega hreingerningardegi. Góð saga.

Veit einhver hvort nýja tölublaðið af Sámi sé komið í búðir?