Lítil Lilý
Ég velti því fyrir mér í kvöld hvort ég eigi einhvertímann eftir að hætta að vera lítil stelpa. Mér finnst ég vera lítil stelpa og ég held ég sé það og að ég verði það alltaf um aldur og ævi og næstum því amen. Þegar fá ár voru liðin frá fæðingu þótti það stórskemmtilegt að halda "teboð" altsvo átti maður lítið og sætt porstulínsstell. Í bollana hellti maður djús og með djúsnum borðaðist kex. Kexið var í þykjustunni heimabökuð kaka og djúsinn te. Ekki var það amalegt ef húsfreyjan bauð uppá dúkað borð með nýtíndar sóleyjar í vasa og tónlist með teinu. Ef vel lág á manni sullaði maður nesquik útí vatn án þess að ma&pa sæju til og drakk það í flýti. Minnist ég jafnvel jússulegra umræðna þar sem maður lék Gróu á leiti og fórst það frekar vel úr hendi þó ég segi sjálf frá. Jafnvel hélt maður á "barninu"sínu í fanginu um leið og maður sötraði dísætt ávaxtateið. Móðurleg mjög og frekar fullorðins.

Í kvöld fór ég í afar ljúft matarboð. Ég valdi bleikar rósir úr flóru blómabúðarinnar.. fékk fullorðins mat sem var svo góður að ég tími varla að deila honum með Gustaf.. drakk te úr mjög vel hönnuðum bolla, það var meira að segja lífrænt og smakkaðist betur en hugsast getur. Gróa á leiti mætti og sat með okkur til borðs en hafði þó ekki svo hátt um sig. Heimabökuð súkkulaði kaka lék sér við bragðlaukana af mikilli list og kom sér að endingu undurvel fyrir í mettum maga. Fullorðins bergmálaði í eyrunum á mér þegar rætt var um brúðkaup og barneignir og mér fannst eins og ég væri í draumi að upplifa dúkkuleikinn aftur. En bara í alvöru. Ég sökk inn í sjálfa mig eitt andartak og brosti að því að vera vaxinn inní og uppí alvöru boð.
Stuttur stígur milli draums og veruleika. Fá en fíngerð þrep frá bernsku og uppað næsta stigi tilverunnar. Fá en skemmtileg. Fá en vel valin og þaulstigin. Ég er ekki frá því að ég hafi gert nokkrar jafnvægisæfingar á leiðinni. En mér finnst ég samt ennþá vera á leiðinni. Þetta er svo grænt og gróðursælt tímabil að maður vill helst stoppa og njóta við og við. Teygja úr sér og draga djúpt andann. Stundum beygji ég mig meira að segja niður og snerti þrepin, rétt til að finna formið og áferðina. Þá þykir mér heldur ekki svo slæmt að setjast niður og horfa í kringum mig. Fylgjast með og læra. Hvort sem er í rigningu eða birtu.
Ég elska að geta upplifað allt í einu. Draum og dúkkuleik.. sælu, síbreytilega tilveru og daginn í dag.

<< Home