þriðjudagur, nóvember 13, 2007

Hamingjan sanna.

Tjaldar yfir 20 bílastæði í 10 daga. Í miðborg Reykjavíkur, það er nefnilega það. Hvað segirðu hver? Jahh varla er það Jón, það hlýtur að vera séra Jón.

-Ég hlustaði nú á rás 2 seinnipartinn í dag. Þar sat fyrir svörum borgarböðull formsillensens skipularidensens eitthvað. Hann var spurður hvort hver sem er gæti gert slíkt hið sama. Tekið sig til og haldið útilegu fyrir hálfan Hafnarfjörð á bílastæðabletti þegar fátt skorti meira en einmitt pláss fyrir ökutæki miðbæjargesta, nema þá kannski þak yfir höfuðið á verði sem ekki blóðsýgur landann, hvort heldur sem er leigu eða kaup. Hann var með eitthvað í hálsinum kallpungurinn, hikstaði og hummaði. Ég skildi ekki tungumálið.

Ósvífni er orð sem mér kemur í hug.

Merkikerti. Já nei, má ég þá frekar biðja um þessi þarna litlu sem loga líka. Þau ræna ekki andartakinu heldur hafa sig öll við að skapa það.