fimmtudagur, nóvember 15, 2007


Það greip mig einhver og ég varð að koma þessu tuði þarna aðeins neðar á síðuna. Mikið leiðist mér þegar ég þarf að vera með þetta krastillu (nýtt orð sem kemur í staðinn fyrir blótsyrði en er ekki ljótt) tuð. Hana! Feis á tuðfærsluna.. you are goin dooooown!

Ég hef það á tilfinningunni að tíminn líði. Þó hefur ekki komið til mín staðfesting á því hvort það sé einhver stoð fyrir þessum grunsemdunum, sem bara liggja og leika sér í sullumalli huga míns. En ef þetta reynist rétt, þá er skólinn senn á enda. Sumarið löngu búið. Bernskan brunuð framhjá mér á nýsmurðum þoturassi í þéttri mjöll Byggðavegsbrekkunnar OG jólin á næsta leiti.

Það var líkt og einhver laumaði konfektmola inn í hversdagsleikann í dag. Drengur, var það gott að gæða sér á honum! Eftir stíruþurkun og hárburstun steig ég út fyrir hússins dyr. Þar var engin önnur en Gunna Gleði Glaumsdóttir formaður móttökunefndar þegar ég kom að Vollanum nýgreidd og étin. 12 stiga hiti gerir það að verkum að fingurnir þurfa ekki að þola kulda og krap við fjarlægingu frostrósa. Þvílíkur munur. Eins og bleikur machintosh.

Í blaðinu í dag var manni tjáð það að Norsararnir flegðu fram fregnum af því að menn og konur, börn og barnlausir væru í stórhættu vegna þráðlausra nettengingar. Þar í landi vilja þeir þetta óarga fyrirbæri burt úr skólum hið fyrsta og ekki orð um það meir. Ekki nóg með það.. neihey! Ekki var framhaldið fallegt, því rannsóknir sem styðja þessar kenningar leiddu einnig í ljós að fararsnið sé á frjósemi þeirra sem sitja með fartölvur sínar í kjöltunni nú ef hún sé þá ekki á bak og burt nú þegar. Ef eitthvað er til í þessu þá er eins gott að fara að ákveða hvaðan maður ætlar að ætleiða. En ég vona að þetta sé nú bara eitt af þessu "..það er alltaf eitthvað" innleggum í umræðuna, á prenti.

Það er ekki laust við að ég hlakki til að trilla mér inní mjúkan heim næturinnar þar sem mig dreymir einhverja vitleysu sem ég get hlegið að í fyrramálið. Kannski kem ég til með að hlæja í draumi mínum að vitleysu dagsins í dag. Það er ekki svo gott að segja. En ég veit það fyrir víst að það verður yndislegt að vakna í fyrramálið.