Hey you! How're you doing today?
Canada krúnk krúnk, ég er komin í faðm familíunnar. Herregud hve notalegt það er.
Ég byrjaði náttúrulega á því að fljúga til Londres og stoppa þar í tvær nætur. Yndislegir endurfundir og ég verð væmin inní mér þegar ég hugsa til krakkanna, þá reyndar ekki að upplifa það í fyrsta skipti. Mér var tekið eins og prinsessu þarna og dekrað við mig í alla staði. Hæst ber að nefna að Anna og Elfar buðu mér með sér á opnun á listasýningu í Opera Gallery. Sýningin ber nafnið In the mood for pop og þar voru molar eins og Damian Hirst, Roy Lichtenstein, Tang Zhigang og fleiri. Monet hékk þarna uppá vegg líka, ásamt Chagall.. þó ekki í tengslum við sýninguna :-0 ooog mér leiddist ekki.
Eftir rúmlega tólf tíma ferðalag þambaði ég kaffi með mömmu og pabba á flugvellinum í Toronto. Mín líkamsklukka að nálgast níu en bara fimm hjá Kanadakríum. Flugferðin var mothaf. crazy in the house of pain. Ég geri mér grein fyrir því að til er fólk með lengri lappir en ég og hafði ég fulla samúð með þessu fólki í kringum mig í flugvélinni. Sjálf er ég enn með strengi í löppunum eftir þessa flugferð þar sem ég annað hvort þurfti að sitja gleiðari en Gugga "wideopen" Grímsdóttir, eða krumpaðari en apafóstur í móðurkviði.. þá í einu sæti. Gríðarlegur léttir og feginleiki sem fylgdi því að fá að færa þessa fætur (fffff) í taktföstum hreyfingum sem ég kalla göngulag. Very nice!
Í Paulstown Crescent number 10 er gott að vera. Ég sef hér á nóttunni án þess að vita af mér. Nú sit ég södd og skrifa þessi orð eftir sunnudagsmorgunmatinn sem varð að flýta vegna piparkökubaksturs morgundagsins, en þessi sunnudagsmorgunmatur stóð saman af beikon og egg ala dammi + american pancakes líka ala dammi og ávöxtum.
Nú er ég rokin á jólamarkað í St. Jakobs


<< Home