þriðjudagur, desember 25, 2007

Það eru bara jólin.

Ég veit ekki hvar ég á að byrja. Skamma ég rass minn fyrir að hafa ekki bloggað síðan síðast. Við erum búin að þeysast hér um og gera ýmislegt eftirminnilegt. Bestar eru þó stundirnar þar sem við höfum setið sameinuð með ljúfa tóna í bakgrunn að undirbúa jólin eða njóta þeirra. Þessar stundir eru veganesti sem gott verður að gæða sér á þegar fram sækir. Hvaða hvaða, maður bara væmin í anda jólanna? Haaaaa.. Nú er runninn upp jóladagur og hér ligg ég enn í rúminu klukkan hálf tólf, allir eru sofandi á sínum grænu jólaeyrum og dreymir eflaust eitthvað fallegt. Það sem bíður mín í dag er Stephen King - Örlög, hana þarf ég að klára áður en ég fer heim, mjög jólaleg bók. Einmitt. Súkkulaði og piparkökur, hangikjöt og kertaljós, faðir minn og móðir góð ásamt bræðrum tveim, en þessa kvartets ætla ég að anda að mér og njóta í botn.. því ég þarf líka að pakka ofan í tösku og skottast svo í burtu á morgun. Með rass minn í eftirdragi.. bölvaðan.



Gleðileg jól!