miðvikudagur, janúar 09, 2008

75

Hún hló og augun dönsuðu, kertið var væntumþykjan, teið táknaði þakklætið og rúnstykkið myndaði mjúkan dún í magabotninn. Dúnninn var vel til þess fallinn að taka á móti tilfinningum dagsins og búa þeim ból í hlýju umhverfi.

Amma var með kórónu í dag. Það fór henni vel, mér finnst hún mætti bera hana alla daga.