miðvikudagur, janúar 16, 2008

Stafasúpa

Andi og apaskinn. Ánægja og áhugi. Birta og og og bros. Draumar og dálæti. Efni og eftirtekt. Form og fræði. Gleði og Galúin. Hlátur og Hamingja. Ilmur og Inniskór. Jörð og jafnvægi. Kátína og kríugarg. Litir og leikur. Málning og miðlun. Nostalgía og Nútími. Ostur og orangúti. Óskasteinn og ómur. Popp og pípuhattur. Kú og Q. Rass og Reginaldur. Sundhetta og simpansi. Tár bros og takkaskór. Úlpa og úllala. Vani og vikudagur. X-faktor og xtra-blaðið. Ýldulykt og ýsuflak. Zelda og Zorro. Þang og Þöngulhaus. Ær og æla. Ögn og ölæði.

Svo fór ég í bankan í dag og hélt í smástund að einn þjónustufulltrúinn væri með sleikjó, en hann var bara í tjilli með tannstöngul.

Ég þarf að pissa milljónsinnumádag þessa dagana. Hvort það tengist te og kaffidrykkju er ekki gott að segja til um.

Taktu hár úr hala mínum.

Fjallið heillar á kvöldin og sérstaklega á kvöldin.

Ef þig vantar skeini, þá get ég reddað þér lúxus rúllum á spottprís. Heppin(n)!

Með hvítlauk í rallanum kveð ég kvefið.

Æ, galsi góður gakktu burt,
Hlauptu, hlæðu, hentust smurt!
Glógló, gapir geispandi
Sæl hún brátt er sofandi.