Skorpur
Er ekki stundum bara ágætt að taka skorpur?
Borða skorpur og mylja.
Það er skorputíð.
Skorpur í öll mál og skólatengdar skorpur sem einkennast af viðveru frá 8 til 18.
Heimavinna frá 18.45 til 21 fylgir. Mikið vatn og fallegur Megas sem opnar og lokar deginum.
Ég uppgötvaði hvað það er gott að hlusta á hann syngja, Nú er ég klæddur, þegar maður er klæddur að morgni dags.
Það er í allastaði viðeigandi og vel passandi.
Svipað og ostur á brauðið. Þröstur í lundinn eða kanill á grautinn.
Mig dreymir um tengingar,
ég sé þær fyrir mér og finn þær mótast.
Svo teygi ég mig og trítilóð beygi.
Stundum sveigi og stökusinnum hneigi.
Lítil leggst ég,
að liðnum löngum degi.


<< Home