Laufabrauð og litadýrð
Þegar ég bragðaði fyrstu skeiðina af grautnum í morgun hugsaði ég til ömmu. Sem nostraði við grautinn sinn alla morgna í fyrravetur, falleg í flónel við eldhúsborðið, skreytti hann með fræjum og trönuberjum. Eitthvað sagði mér að hún sæti við þessa iðju, við borðið á Byggðaveginum um leið og ég sat við mitt. Klukkan hálf níu og rás 1 í útvarpinu.
Mamma hringdi í gærkvöldi og pantaði flug fyrir mig norður. Frá fimmtudegi til sunnudagskvölds ætla ég að hringa mig í hreiðrinu og mala eins og saddur köttur. Mikið óskaplega verður það gott. Mér hefur verið lofaður fiskur að hætti Jamie Oliver með tötsi frá Húnu Relga, þessi elska.
Svo er víst ýmislegt í gangi í bílskúrnum í Löngumýrinni, mér skilst að þar sé verkstæði jólasveinsins í ár. Hlakka til að fá að strjúka rennibekknum aðeins og daðra við kanadískann við. Nú rúsínan í pylsuendanum er náttúrulega laufarbrauðslaugardagur í Byggðavegi 114. Ég er strax byrjuð að leita að jólasveinahúfunni.
Nýr kúrs nýfarinn af stað í skólanum. Það sem er efst í huga mér þessa dagana hvað hann varðar eru tyggjóklessur, tengingar, tungumál, þræðir og samskipti margra þátta. Ég held að þetta gangi allstaðar útá það sama. Að eiga samskipti, hvort sem er í orðum, tónum eða litum. Lífið væri lítilfjörlegt ef ekki væri fyrir fólkið sem maður skiptist á orðum við hvern daginn í senn, litríkt er það ef flóra fólksins skartar fjölbreytileika. Tónlistin væri líflaus ef tónarnir í henni töluðu ekki saman og myndlistin væri mygluð ef ekki grillti í samskipti milli lita og forma, áferðar og efnis. Reyndar held ég að ekki sé hjá þessu komist, samskiptin þurfa alltaf að eiga sinn stað. Spurningin er bara hvernig maður vill hafa þau.


<< Home