þriðjudagur, september 23, 2008


Pot í bumbu


Ég get svarið það, gott ef ég er ekki bara komin í einhver klæði hérna á suðurlandinu. Bagalegt að vera nakin svona lengi, tala nú ekki um þegar það rignir eins og hefur gert undanfarið. Annars þykir mér ágætt að vera frjálsleg til fara og fínt að vera nakin. En stundum á það ekki við og þá getur maður orðið ótrúlega vandræðalegur með sjálfa sig og aðstæður. Þannig að ég fagna því að vera komin í föt og passa bara uppá að hafa bert á milli til að ballansera stípihneigðina við velsæmið.

Norðurlandið á kannski einhvern þátt í þessu, við sóttum það heim um helgina og fengum rjóman af því besta útá skyrið. Listir og ljúfar stundir með vinum og fjölskyldu áttu mig alla, allan tímann. Verst þegar maður staldrar svona stutt við að maður nær ekki nærri öllu sem maður vildi gera, þrátt fyrir að vera á þrjúþúsund snúningum og í kapphlaupi við ljósið. Þessi helgi hleypti í mig nýjum krafti. Virkilega gott líka að fá bót í bú. Við vorum að sjálfsögðu ekki sendar tómhentar heim o neinei.. seisei. Silungur, grafinn lax og reyktur, sultur.. sólberja, krækiberja, bláberja og rifsberja, sem og gallon af skeinipappír komu með okkur uppá Hagann. Þannig að við höfum líklega komið út á núlli eftir þessar heimsókn. Jafnvel í plús.

Gott að fá nóg af skeini þar sem mér leiðist alveg hreint djöfullega að eyða pening í þennan andskota! Jáh heyra í mér! En þetta er dagsatt. Ég bölva þeirri fjárfestingu, enda ömurleg, í hvert skipti sem ekki er hjá því komist að kasta peningunum í þetta fyrirbæri.
Kannski það verði skolskál á mínu heimili í framtíðinni, maður veit ekki. Eða tauþurrkur. Ómögulegt að segja.

Silungurinn verður eldaður í kvöld, rigningin má dynja á þakinu því það hjálpar bara kertunum að klæða mig með flaueli að innan. Ljómandi ljómandi.. nú verða bakaðar bollur.