Gull í mund
Sumar stundir eru stundir sem gefa að líta gullgrundir. Svo eru aðrar sem eru á öndverðu meiði, sullandi mýrar og drullusýki. Sem betur fer leynast oftar en ekki gullhnúðar í vösum manns frá ævintýrum liðinna stunda. Þá getur verið gott að nudda milli þumals og vísifingurs til að gæða þreytta fingur gömlu gulli. Ég er ekki svartsýn. Ég er bara svolítið sljó og döpur.
Stundum, á ég ekki til eitt aukatekið orð.
Tvær vaktir eftir í vinnunni. Tæp vika eftir á Akureyri, ein helgi eftir á Kóngsstöðum. Fáir dagar eftir af munaðslífi sem gefur gott í gogg og trefjar í maga sæta langa sumardaga. Nú tekur við vantsþamb og matarbetl. Sumarið er búið að vera einstaklega gott. Ferðin til Svíþjóðar var frábær með snilldar fólki og ég vona að ég fái að fara til Noregs á næsta ári með jafn góðan hóp og í ár.
Við sigldum útí Elbakajen sem er Eyja í Mäleren, þar grilluðum við, sveifluðum eldi og klifruðum uppí gígantíska stóla svo sást alla leið yfir hafið og heim til Íslands
Við borðuðum líka korv
Haraldur og Máni festu kaup á airzooka! Hér sést Guðrún í trylltum ham rétt áður en ég fékk gustinn í smettið
Rigmor og Jarno fullbúin fyrir Sala Silvergruva. Við fórum 155 m niður í jörðina og skoðuðum silvurnámur þar sem menn unnu naktir myrkrana á milli í 2°C. Þar var líka hægt að leigja sal undir brúðkaupsveislur og annað gott. Brúðarsvíta fylgdi leigunni og þar gistir fólk og elskast. 155 m oní jörðinni. Veit ekki alveg með það.
Haraldur átti í svolitlum vandræðum með hægðir.
Liðið hans Mána var best í þrautaleiknum og hann fékk pakka.
Christoffer, himininn og froðan
Guðrún, Rósa og Selma sem vissi ekki að hún væri með froðu á hausnum
Sessí, dansker og hamingja
Anders, Christoffer, Jónflón og Rigmor - Be-e-eautifull
lil und Selma sötnos
Fallegu Íslendingarnir á lokakvöldinu
Pétur Gautur - tyllingur í hæsta gæðaflokki


<< Home