fimmtudagur, júlí 10, 2008

Hve gott er að njóta

Hvernig sólin glitrar á hafinu og bifukollurnar fjúka með norðaustan-gjólunni, hvernig hjálmarnir eru skekkjast á börnunum og trampólínin ískra í eyrunum. Hvernig lokið af vaselíninu losnar alltaf af krukkunni og ratar ofan í hana. Hvernig taskan dinglar á mjöðminni í takt við það hvernig maður hjólar og hvað línur fjallanna verða fallegar í heiðskýru veðri. Hvernig hægt er að draga andann og vera rómantískur þrolli með skítugar tær.. algjörlega af tilefnislausu.